Björgunarfélagið greinir frá því í færslu á Facebook-síðu sinni að sveitin hafi verið kölluð út á hæsta forgangi í gærkvöldi.
„Fyrstu bátar fóru á flot 7 mínútum seinna og fannst viðkomandi tæpum 15 mínútum eftir að útkall barst. Björgunarmenn hófu endurlífgun í bátnum og var sjúklingurinn svo færður á land og yfir í þyrlu Landhelgisgæslunnar í samstarfi við sjúkraflutninga og lögreglu,“ segir í færslunni.
„Nú í morgun tilkynnti lögreglan að sjúklingurinn hefði látist. Við í Björgunarfélagi Árborgar vottum aðstandendum okkar dýpstu samúðarkveðjur.“