Þriðja ríkisstjórn Danmerkur undir forsæti Mette Frederiksen var kynnt í morgun. Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi Moderaterne, verður áfram utanríkisráðherra. Hann hefur setið lengi á danska þinginu og gegnt ýmsum ráðherraembættum, þar á meðal verið forsætisráðherra tvisvar. Mikið mæddi á honum og Frederiksen á síðasta kjörtímabili eftir hótanir Donalds Trumps um að taka yfir Grænland, með góðu eða illu.
Pia Olsen Dyhr, leiðtogi Sósíalíska þjóðarflokksins, verður efnahags- og innanríkisráðherra og Martin Lidegaard, leiðtogi Radikale, verður iðnaðarráðherra og ráðherra samkeppnismála. Nicolai Wammer og Peter Hummelgard úr Jafnaðarmannaflokknum skipta um embætti. Wammen tekur við dómsmálaráðuneytinu og Hummelgard verður fjármálaráðherra.
Ráðherrarnir í nýju ríkisstjórninni eru 21 talsins og þar af eru 11 konur. Þetta er í fyrsta sinn í sögu Danmerkur sem konur í ríkisstjórn eru fleiri en karlar. Mette Frederiksen sagðist í morgun vera stolt af þeirri ríkisstjórn sem flokkarnir fjórir hafi myndað.
Níu ráðherrar koma úr röðum jafnaðarmanna, fimm frá Sósíalíska þjóðarflokknum, fjórir úr Moderaterne og þrír frá Radikale.