Með þessari stafrænu lausn getur hver og einn sett saman sitt eigið aðgengi fyrir þjónustur borgarinnar samkvæmt fréttatilkynningu. Meðal kortanna sem standa til boða er kort í sundlaugar borgarinnar, Fjölskyldu- og húsdýragarðinn eða á Ylströndina í Nauthólsvík.
Þá er einnig til svokallað Menningarkort þar sem veittur er aðgangur að söfnum, sýningum og alls kyns viðburðum á vegum borgarinnar.
Kynning á kortinu fer af stað í næstu viku. Reykjavíkurborg er ekki sú fyrsta til að taka upp stafræn sundkort en slíkt er í boði í sundlaugum Garðabæjar, Vestmannaeyja og í Sundlauginni Laugaskarði.