Kjartan tekur við starfi aðstoðarmanns af Jóni Magnúsi Kristjánssyni og mun starfa við hlið Guðríðar Láru Þrastardóttur sem einnig er aðstoðarmaður ráðherra. Jón Magnús tilkynnti í vor að hann ætlaði að snúa aftur til starfa við bráðaþjónustu á Landspítalanum.
Kjartan Hreinn starfaði áður sem ritstjóri Fréttablaðsins. Kjartan Hreinn er með BA -gráðu í bókmenntafræði og býr í Hafnarfirði ásamt unnustu sinni og tveimur börnum.
„Ég þekki vel til Kjartans sem starfaði náið með mér þegar ég gegndi embætti landlæknis. Í starfi sínu hjá embættinu til sjö ára hefur hann öðlast mikilvæga þekkingu á heilbrigðismálum, ekki síst gæðum og eftirliti, auk þekkingar á stjórnsýslu þessara mála. Hann verður góður liðsauki í ráðuneytinu og ég hlakka til samstarfsins við hann“ segir Alma D. Möller.