Katrín prinsessa af Wales sótti í dag móttöku í St. James-höllinni í Lundúnum í tilefni af 125 ára afmæli Cancer Research UK sem er ein stærsta sjálfstæða krabbameinsrannsóknarstofa heims.
Katrín var þar ásamt Karli konungi og Kamillu drottningu. Viðburðurinn var haldinn til að vekja athygli á starfseminni og heiðra framlag helstu rannsakenda, lækna og sjálfboðaliða.
Þetta var í fyrsta sinn sem prinsessan af Wales og Karl konungur komu saman opinberlega til að styðja málefni sem snertir þau bæði persónulega. Árið 2024 greindu þau bæði frá því, með aðeins nokkurra vikna millibili, að þau hefðu greinst með krabbamein.
Rauður kjóll frá Rodarte
Við þetta merka tilefni klæddist Katrín rauðum kjól með hvítu hjartalaga mynstri, en rauður er einn af hennar uppáhaldslitum og doppumynstur eitt af hennar uppáhaldsmynstrum. Á kjólnum var hvítur kragi og hvítar ermalíningar sem settu ferskan og nútímalegan blæ á kjólinn.
Það sem vakti þó sérstaka athygli var að kjóllinn var frá Rodarte, bandarísku tískumerki sem systurnar Kate og Laura Mulleavy reka í Kaliforníu. Rodarte er þekkt fyrir rómantíska hönnun og gjarnan kvenlega hönnun. Katrín er vön því að velja sér breska hönnuði og fatamerki við svona tilefni.
Þótt hönnuðurinn hafi komið á óvart var stíllinn mjög í anda hennar. Við kjólinn hélt hún á Miu Miu-handtösku og rauðum Gianvito Rossi-hælaskóm.
