Fulltrúar Ísrael og Líbanon funda í Washington í Bandaríkjunum á fimmtudaginn. Þjóðirnar samþykktu 10 daga vopnahlé sín á milli á föstudaginn og Hezbollah-samtökin einnig. Árásir hafa þó haldið áfram. Ísraelsher hefur varað Líbana við að snúa til baka á heimili sín í Suður-Líbanon. Þá gerðu Hezbolla-liðar árásir á Norður-Ísrael í gær, sem þeir segja að hafi verið til að svara fyrir brot Ísraela á vopnahléinu. Fréttaveitan AFP greinir frá því að samkvæmt ríkisstjórn Líbanon hafi að minnsta kosti 2.454 verið drepnir í Líbanon síðan stríðið milli Ísraela og Líbana hófst 2. mars.
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social í gærkvöld að hann hyggist framlengja vopnahléið þar til Íranar setji fram samstillta tillögu um hvernig hægt væri að binda enda á átökin. Hann segir ákvörðunina hafa verið tekna í ljósi mikillar sundrungar innan stjórnar Írans. Með henni sé hann einnig að verða við beiðni ríkisstjórnar Pakistans.
Íranar hafa orðið fyrir mestu mannfalli
Al Jazeera birti í gær uppfærða samantekt um fjölda látinna og særðra í stríðinu í Mið-Austurlöndum. Þar kemur fram að í Íran hafa 3.375 verið drepnir í árásum Bandaríkjanna og Ísraels og yfir 26.500 hafa særst í árásum fram til þessa.
Þá hafa 2.294 verið drepnir og 7.554 særðir í Líbanon samkvæmt Al Jazeera, sem er lægri tala en ríkisstjórn Líbanon greinir frá og vísað er til hér að ofan.
Í Írak hafa 118 verið drepnir og tugir særst.
Í Ísrael hafa 26 verið drepnir í Ísrael og 7.693. Þessar tölulegu upplýsingar ná aftur til 28. febrúar og eru vegna árásar Írana á Ísrael.
13 bandarískir hermenn hafa fallið í stríðsátökunum og 200 særst.
Í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafa 12 verið drepnir og 224 særst.
Í Bahrein hafa þrír verið drepnir og tugir særst.
Í Jórdaníu hafa 29 særst í árásum, en ekki hefur verið tilkynnt um dráp á almennum borgurum.
Í Kúveit hafa 7 verið drepnir og tugir særst.
Í Óman hafa 3 verið drepnir og 15 særst.
Í Katar hafa 20 særst í árásum.
Í Sádí Arabíu hafa 3 verið drepnir og 29 særst.