Trump skrifar engan texta með færslunni sem hann birti á Truth social á þriðja tímanum eftir hádegi. Kortið sýnir Norður-Ameríku og Ísland þakið bandaríska fánanum.
Hann hefur áður birt slíkt kort af Grænlandi enda hefur hann ítrekað lýst því yfir að hann vilji leggja undir sig Grænland og lét þau ummæli falla nýlega að eyjan yrði hluti af Bandaríkjunum í janúar 2029.
Hingað til hefur hann aftur á móti ekki lýst áhuga á Íslandi með beinum hætti, þó að hann hafi í ræðu í byrjun árs ítrekað vísað til Grænlands sem Íslands. Þá var greint frá því í janúar að Billy Long, nýr sendiherra Bandaríkjanna í Reykjavík, hefði grínast með það að Ísland yrði 52. ríki Bandaríkjanna en hann baðst síðan afsökunar.
Fréttin verður uppfærð.