Bandaríski rafbílaframleiðandinn Tesla hefur innkallað öll eintök afturhjóladrifinnar útgáfu Cybertruck pallbílsins sem selst hafa síðustu tvö árin. Umferðaröryggisstofnun Bandaríkjanna (US National Highway Traffic Safety Administration) varaði við því að undir álagi geti sprungur myndast í kringum felgubolta. Það getur aukið hættu á að ökumaður hafi takmarkaða stjórn og í versta falli misst dekk undan bílnum.
Vegna lélegrar sölu Cybertruck bílanna þarf ekki að innkalla nema 173 eintök. Elon Musk, eigandi Tesla, hafði spáði því að árið 2025 yrðu 250 þúsund eintök Cybertruck seld árlega. Í raun voru rétt rúmlega 20 þúsund eintök seld í fyrra.
Þar af keypti SpaceX, annað fyrirtæki Musks, næstum fimmtung seldra Cybertruck bíla í Bandaríkjunum á síðasta ársfjórðingi 2025. Það er samkvæmt hagtölum S&P Global Mobility.
Fyrr á þessu ári tók kínverski rafbílaframleiðandinn BYD fram úr Tesla sem söluhæsti rafbílaframleiðandi heims. Eftir að sölutölur Tesla hækkuðu árlega frá 2013 til 2023 dalaði salan síðustu tvö ár.
Minnkandi sölu má meðal annars rekja til framleiðslutafa. Þá hefur orðspor Tesla beðið hnekki vegna umdeildra pólitískra skoðanna Musk. Hann hefur meðal annars verið gagnrýndur fyrir stuðning sinn við íhaldssamt stjórnmálafólk víða í Evrópu.