Ingunn sögð hafa kýlt fórnarlamb sitt með hnúajárni

Brotaþoli í Reykholtsmálinu svokallaða gaf skýrslu fyrir dómi í dag og lýsti þar alvarlegu ofbeldi og frelsissviptingu sem hann kveðst hafa sætt í apríl 2024 og greindi DV frá vitnisburði hans.
Maðurinn er maltneskur ríkisborgari af palestínskum uppruna og hafði búið á Íslandi frá árinu 2010 eða 2011.
Brotaþoli hafði leigt húsnæði af Sigurði Gunnari Ásgeirssyni í um fjögur ár þegar atvik málsins áttu sér stað. Hann sagði fjóra einstaklinga hafa komið inn á heimili hans að kvöldi 19. apríl 2024. Hann hafi strax verið beittur ofbeldi, bundinn á höndum og fótum og færður í sturtu þar sem honum hafi að mestu verið haldið alla helgina án matar og drykkjar.
Brotaþoli sagði Andra Má Mortensen Birgisson og Ingunni Rut Sigurðardóttur hafa beitt sig ofbeldi en Ingunn hefur játað sök í málinu. Hún hefur þó neitað að hafa tekið þátt í ofbeldi. Andri hafi meðal annars ógnað honum með hnífi en Ingunn hafi beitt hnúajárni. Þá lýsti hann því að Sigurður Gunnar hefði komið ítrekað á staðinn og sýnt ógnandi tilburði.
Fram kom að brotaþoli greindist síðar með blæðingu í framheila. Hann mun einnig hafa kjálka- og nefbrotnað og misst 15 tennur.
Brotaþoli sagði að áður en hann var fluttur til Reykjavíkur 22. apríl hefði honum verið gert að þvo af sér blóð. Ingunn hefði síðan farðað hann til að fela áverka.
„Því ég var blóðugur í andlitinu. Það var mikið blóð á höndunum á mér og andlitinu. Maður finnur þessa blóðlykt líka,“ sagði hann fyrir dómi.
Brotaþoli sagði sakborninga hafa ítrekað reynt að fá rafræn skilríki hans. Síðar hafi hann komist að því að um 17,6 milljónir króna hefðu verið millifærðar af reikningum hans.
Frásögn mannsins var að hluta óljós og sagðist hann ekki muna öll atvik nákvæmlega. Hann lýsti þó miklu þakklæti í garð íslensks samfélags, lögreglu og þeirra sem komið hafa að málinu.