Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en þar eru ekki veittar frekari upplýsingar um málið. Í ótengdu máli var tilkynnt um líkamsárás í Hafnarfirði í dag þar sem brotaþoli hlaut minniháttar meiðsli. Einn var handtekinn og vistaður í fangageymslu sökum ástands, að sögn lögreglu. Þá aðhafðist lögregla vegna annarrar líkamsárásar á Seltjarnarnesi í dag. Talað er um minniháttar meiðsli og sagt að málið hafi verið afgreitt á vettvangi. Annar maður var handtekinn í Hlíðum í Reykjavík fyrir skjalafals. Var hann vistaður í fangageymslu.
Veistu meira? Þú getur sent okkur fréttaskot hér. Fullum trúnaði heitið.
Veistu meira? Þú getur sent okkur fréttaskot hér. Fullum trúnaði heitið.