Þá verður norðvestanátt austantil, átta til fimmtán metrar á sekúndu, með rigningu eða slyddu með köflum. Seinnipartinn mun draga úr vindi og stytta upp og draga úr vindi. Á Vesturlandi verður hæg breytileg átt og bjart að mestu. Í kvöld tekur síðan til að frysta.
Á morgun verður hitinn fjögur til tíu stig yfir daginn og en lægð frá Grænlandshafi beinir suðaustlægri átt til landsins, kalda eða strekking og smáskúri suðvestan- og vestantil. Á Norður- og Ausutrlandi verður hægri vindur og nokkuð bjart.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Suðaustan 8-15 m/s og smáskúrir suðvestan- og vestantil. Hægari vindur í öðrum landshlutum og bjart með köflum. Hiti 4 til 10 stig að deginum.
Á mánudag:
Sunnan 5-13 vestast á landinu, annars hægari vindur. Súld með köflum, en yfirleitt léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Hiti 5 til 12 stig yfir daginn.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Suðvestan 8-13 norðvestantil, annars hægari vindur. Skýjað vestanlands og líkur á súld, en léttskýjað um landið austanvert. Áfram milt.
Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti):
Suðvestan- og vestanátt, skýjað og sums staðar dálítil væta, en lengst af þurrt og bjart um landið austanvert. Hiti 5 til 12 stig.
Á föstudag:
Vestlæg átt og súld eða dálítil rigning með köflum, en léttskýjað um landið suðaustanvert.