Hann verður fluttur til Noregs á næstu dögum, samkvæmt norska ríkisútvarpinu, og stendur þá til að yfirheyra hann vegna hvarfs Anne Elisabeth Hagen.
Maðurinn mun hafa verið handtekinn í Gothenburg á þriðjudaginn. Hann er sagður með sögu glæpa á bakinu.
Í samtali við NRK segir lögmaður mannsins að hún hafi ekki fengið upplýsingar um að handtakan tengist hvarfi Anne Elisabeth Hagen. Hún bendir á að maðurinn hafi lengi neitað sök í því máli en hann er með stöðu sakbornings í því.
Sjá einnig: Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen
Eins og áður segir hvarf Anne Elisabeth Hagen árið 2018. Það var þó ekki tilkynnt fyrr en í janúar 2019, tíu vikum eftir að hún hvarf frá heimili sínu við Sloraveien á Fjellhamar í Lørenskog. Hún var gift milljarðamæringnum Tom Hagen, sem var handtekinn og ákærður fyrir morð árið 2020.
Ákæran var þó felld niður árið 2024 og hann hreinsaður af sök.