Þrír hafa verið handteknir vegna fjölda innbrota í miðborg Reykjavíkur en samkvæmt lögreglu er ekki um skipulagða glæpastarfsemi að ræða heldur tilviljunarkennd innbrot. Að minnsta kosti sextíu innbrot í miðborginni hafa verið tilkynnt til lögreglu.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri lofaði aðgerðum eftir ákall íbúasamtaka um að aðgerðir gegn innbrotunum. Nú hyggst hún ávarpa íbúa á samráðsfundi í Ráðhúsi Reykjavíkur þriðjudaginn 28. júlí klukkan 17.
Eyþór Víðisson, sérfræðingur í öryggismálum, verður með fræslu á fundinum og fulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir frá samfélagslögreglunni og stöðunni. Meðal þess sem verður til umræðu er nágrannavarsla og geta gestir fengið nágrannavörslulímmiða til þess að setja í gluggana á fundinum.