Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður utan flokka, greindi frá því á Alþingi í gær að krabbamein hefði nýlega greinst hjá honum eftir að blettur var fjarlægður af fæti hans. Hann sagði sig hafa þurft að bíða í rúmt ár eftir rannsókn og hvatti stjórnvöld til að stytta biðtíma eftir heilbrigðisþjónustu.
Guðmundur Ingi ræddi málið undir liðnum störf þingsins á bleika deginum, sem helgaður er stuðningi við fólk sem glímir við krabbamein og aðstandendur þess.
Þingmaðurinn vitnaði fyrst í orð Krabbameinsfélagsins um tilgang dagsins og þá samstöðu sem honum fylgir.
„Bleiki dagurinn snýst nefnilega ekki bara um að klæðast bleiku frá toppi til táar og gera sér glaðan dag, hann er líka innihaldsríkur,“ sagði Guðmundur Ingi og vitnaði þar í Krabbameinsfélagið.
Í kjölfarið greindi hann frá eigin reynslu.
„Nú er rétt tæpur mánuður síðan var tekinn blettur af fæti mínum sem reyndist vera krabbamein,“ sagði Guðmundur Ingi.
Hann sagði að biðin eftir því að komast í rannsókn hefði verið löng.
„Til þess að geta farið í þessa leit þurfti ég að bíða í rúmt ár. Mér skilst að þessi tími muni lengjast mikið.“
Guðmundur Ingi sagði niðurstöðuna hafa verið alvarlega en að hann hefði jafnframt verið heppinn þar sem krabbameinið hefði verið staðbundið og hægt að fjarlægja það.
„Ég var heppinn. Það sem reyndist vera hjá mér var krabbamein en í lottóinu þá vann ég vegna þess að þetta var staðbundið og hægt að taka það.“
Þingmaðurinn sagði sólbekki og sólarljós hafa verið nefnd sem mögulega ástæðu fyrir meininu og varaði sérstaklega við því að brenna í sól. Þá benti hann á hættuna á sortuæxlum, sem geta verið mjög alvarleg.
Guðmundur Ingi lauk máli sínu með ákalli um að biðlistar eftir heilbrigðisþjónustu yrðu styttir.
„Við verðum að sjá til þess að biðtími verði styttur þannig að fólk sem þarf á þjónustu að halda geti virkilega farið og fengið þjónustu og þurfi ekki að bíða í ár eða tvö eða þrjú ár.“