Myndina birti hann á Instagram en þar er hann með sáraumbúðir um bólgið nefið.
Aðgerðin fór fram í Normandí í Frakklandi en á dögunum birti Guðmundur Felix myndband af sér þar sem hann sýndi frá ferðalaginu til Normandí.
Hann sagði biðina eftir niðurstöðum úr rannsókn á meininu hafa verið einhverjar erfiðustu vikur sem hann man eftir.