Hjálmar Bogi Hafliðason kennari biður þjóðina afsökunar vegna niðurstaðna í PISA-könnunum. Hann segir þó að skýrsla PISA segi mun meira en stigataflan og bendir á að íslenskir nemendur séu almennt ánægðari með lífið en nemendur í öðrum OECD löndum. Gera má ráð fyrir að afsökunarbeiðni grunnskólakennarans megi rekja til orða Hauks Arnþórssonar stjórnsýslufræðings sem sagði fyrr í vikunni að grunnskólakennarar skulduðu þjóðinni afsökunarbeiðni fyrir að kenna nemendum minna og verr en aðrar þjóðir.
Grunnskólakennari biður þjóðina afsökunar á niðurstöðum PISA