Greiðslubyrði nýrra húsnæðislána, bæði verðtryggðra og óverðtryggðra, er enn þung í sögulegu samhengi þó að greiðslur af óverðtryggðum íbúðalánum hafi orðið viðráðanlegri á síðustu árum samhliða vaxtalækkunum og launahækkunum umfram íbúðaverðshækkanir. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar sem birt var í morgun.
Fasteignamarkaðurinn var kaldari á fyrri helmingi þessa árs heldur en á sama tímabili í fyrra. Færri kaupsamningum vegna íbúðahúsnæðis hefur verið þinglýst í ár og fólk er lengur að selja íbúðir sínar en áður.