Glæsihýsi í Garðabæ sett á sölulista

Til sölu er glæsilegt og vel viðhaldið einbýlishús við Markarflöt 8 á eftirsóttum stað á Flötunum í Garðabæ. Um er að ræða 227,7 fermetra einbýlishús á einni hæð með fjórum svefnherbergjum og tvöföldum 42 fermetra bílskúr. Ásett verð eignarinnar er 230 milljónir króna.
Húsið var byggt árið 1968 og stendur á stórri, 1.059 fermetra gróinni lóð neðan götu í rólegum botnlanga. Aðkoma að eigninni er afar snyrtileg með rúmgóðu steyptu bílaplani með snjóbræðslu, fallegum trjágróðri, tyrfðum flötum og stórum viðarveröndum. Lóðin er skjólgóð og nýtur sólar allan daginn, en bakgarðurinn snýr til suðvesturs.
Eignin hefur fengið mikið og gott viðhald í gegnum árin og verið endurnýjuð í áföngum á síðustu tveimur áratugum. Á meðal nýlegra framkvæmda eru nýir gluggar í svefnherbergjum og baðherbergi sem settir voru upp árið 2024. Sumarið 2022 var bílaplanið steypt upp á nýtt og tveimur árum áður voru þakkantar, rennur og lýsing í þakkanti endurnýjuð. Baðherbergi hússins var tekið í gegn árið 2019.
Þá hafa eigendur einnig endurnýjað eldhús, rafmagn og rafmagnstöflu, neysluvatnslagnir ásamt ofnum og ofnalögnum, auk klóaklagna.
Staðsetning eignarinnar þykir afar góð en stutt er í leikskóla, grunnskóla, fjölbrautaskóla, íþróttasvæði, verslun og fjölbreytta þjónustu. Þá eru vinsælar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni.
Markarflöt 8 sameinar rúmgott fjölskylduhúsnæði, glæsilega lóð og eftirsótta staðsetningu í einu af vinsælustu hverfum Garðabæjar.