Fertugur karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu. Maðurinn er grunaður um ítrekuð kynferðisbrot gegn barni sem var vistað hjá honum í fóstri. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru fleiri börn í fóstri á heimilinu.
Húsleitir voru gerðar á heimili mannsins á Suðurnesjum um helgina. Lögregla verst allra fregna af rannsókninni.