Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

Eftir tæplega 90 ár gæti ráðgátan um hvarf flugkonunnar Ameliu Earhart loks verið að leysast. Hópur vísindamanna og rannsakenda frá Archaeological Legacy Institute og Purdue-háskóla kom til óbyggðu eyjarinnar Nikumaroro í Suður-Kyrrahafi 12. október til að leita að flugvél hennar. Gervihnattamyndir hafa sýnt óvenjulega lögun á kafi í lóni við eyjuna.
Fyrirbærið, sem hefur fengið heitið Taraia-hluturinn, er talið kunna að vera Lockheed Model 10-E Electra-flugvélin sem Earhart flaug ásamt leiðsögumanninum Fred Noonan þegar þau hurfu árið 1937.
Það mun þó taka rannsakendur nokkurn tíma að komast að því hvort kenningin reynist rétt. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Purdue-háskóla munu þeir þurfa nokkra daga til að ryðja sér leið í gegnum frumskóginn frá lendingarstað sínum að Taraia-skaga, þar sem lónið er.
Auk þess þurfa leiðangursmenn að sofa um borð í skipi. Kókoskrabbar, sem eru stærstu landkrabbadýr heims, eru svo stórir og fyrirferðarmiklir að það þykir óhentugt að dvelja á eyjunni yfir nótt.
Þegar leiðangurinn nær til Taraia-skaga hyggjast rannsakendur nota segulmæli til að leita að járnkenndum málmum sem gætu bent til þess að þar séu leifar flugvélarinnar eða aðrir gripir. Einnig verður sónarbúnaður notaður til að greina hluti á botni lónsins.