Fleiri þing­menn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara - Vísir

Fleiri þing­menn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara - Vísir

Fleiri þing­menn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara - Vísir

Fréttastofa sendi fyrirspurn á alla þingmenn þar sem óskað var upplýsinga um þátttöku þeirra og afstöðu í kosningunum. Þingmenn fengu að því loknu tækifæri til að útskýra afstöðu sína. Fyrirspurnin var fyrst send þann 10. ágúst og ítrekanir síðar sendar í tölvupósti, símtölum og SMS-um. 

Þegar fréttin er birt höfðu fengist svör frá 51 þingmanni af 63. Af þeim sögðu 29 nei, 17 já og fimm gefa ekki upp afstöðu sína. Tólf hafa ekki svarað þegar fréttin er birt.

Sjö þingmenn Samfylkingar hafa ekki svarað fyrirspurninni. Það eru þau Alma Möller, heilbrigðisráðherra, Eydís Ásbjörnsdóttir, Guðmundur Ari Sigurjónsson, formaður þingflokks, Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Ragna Sigurðardóttir og Víðir Reynisson. Aðrir þingmenn Samfylkingar hafa svarað og segja já.

Mörg þeirra hafa þó gefið út afstöðu sína og því mætti gefa sér að þar gætu bæst við sjö já. Auk þeirra hafa ekki svarað tveir þingmenn Viðreisnar, ráðherrarnir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Hanna Katrín Friðrikssen, en þær hafa gefið út afstöðu sína annars staðar. Það má því gera ráð fyrir að hægt sé að bæta níu já-um við talninguna og þau verði þá mögulega 26. Það er samt enn þremur færra en nei-in, sem áfram yrðu 29.

Eyjólfur Ármannsson, er þingmaður Flokks fólksins og innviðaráðherra, en hann hefur ekki svarað fyrirspurninni. Vísir/Vilhelm

Af þeim sem svöruðu fyrirspurninni vildu fjórir þingmenn ekki gefa upp afstöðu. Þrír þeirra eru í Flokki fólksins, þau Ásthildur Lóa Þórisdóttir, Sigurður Helgi Pálmason og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir en auk þeirra vildi Halla Hrund Logadóttir, þingkona Framsóknarflokksins, ekki gefa upp sína afstöðu.

Auk þeirra níu í Samfylkingunni sem ekki svöruðu fyrirspurninni svöruðu ekki þrír þingmenn og ráðherrar Flokks fólksins, þau Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins, Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra. 

Flokkur fólksins segir nei eða ekkert

Halla Hrund var sú eina í sínum þingflokki sem kýs gefa ekki upp sína afstöðu en allir hinir þingmenn Framsóknarflokksins ætla að segja nei.

Það segja líka allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins. Í Flokki fólksins segja líka allir nei sem vildu gefa upp sína afstöðu. Það eru þau Jónína Björk Óskarsdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Sigurjón Þórðarson.

Þá er einn óflokksbundinn þingmaður, Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Flokks fólksins. Hann ætlar þó ólíkt fyrrverandi samflokksmönnum sínum sem gefa upp afstöðu, að segja já.

Full yfirráð yfir auðlindum

Þingmenn nefndu ólíkar ástæður fyrir sínu vali en meginstefið sem má greina meðal nei-ara er að þeir telja hagsmunum Íslands betur borgið utan Evrópusambandsins.

„Ég mun segja nei. Ástæðan er sú að ég tel einfaldlega að hagsmunum okkar sé mun betur borgið utan sambandsins. Að ætla að fara að semja um undanþágur yfir auðlindum þjóðarinnar sem við höfum fulla stjórn á í dag hugnast mér ekki. Sömuleiðis hef ég stórar og verulegar áhyggjur af íslenskum landbúnaði innan sambandsins. Við erum best til þess fallin sjálf að ráða og stýra okkar hagsmunum,“ segir Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður og varaformaður Framsóknarflokksins.

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, telur hagsmunum Íslands best borgið utan Evrópusambandsins.

„Ég vil ekki veita ríkisstjórninni umboð til að hefja að nýju aðildarviðræður við ESB. Ísland á að halda fullum og varanlegum yfirráðum yfir auðlindum sínum og frelsi til að taka ákvarðanir út frá eigin hagsmunum,“ segir Guðrún.

Jens Garðar Helgason, þingmaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, tekur í sama streng.

„Ísland er frábært land og ég trúi að hagsmunum Íslendinga sé best borgið með því að við ráðum örlögum okkar sjálf. Ráðum ferðinni í okkar utanríkismálum og eflum alþjóðastarf og fríverslun. Ég er ekki til í að í veigamiklum málaflokkum verði dóms – löggjafar og framkvæmdavald framselt til stofnana ESB. Þar utan yrði Ísland nettógreiðandi til sambandsins upp á tugi milljarða á ári sem við getum betur nýtt hér heima.“

Landbúnaður og fullveldi

Þórarinn Ingi Þórarinsson, þingmaður Framsóknar, segir sitt nei aðallega fyrir íslenskan landbúnað sem hann segir að muni leggjast af við inngöngu.

Ingibjörg Davíðsdóttir, þingkona Miðflokksins, talar einnig um landbúnað í sínu svari:

„Ég mun kjósa nei. Það eru margar ástæður fyrir því, m.a. þá hugnast mér ekki fullveldisframsal til stofnana og embættismanna í Brussel. Við þurfum ekki aðildarviðræður til að vita hvað Evrópusambandið stendur fyrir, við vitum hvað er ófrávíkjanlegt og það eru grunnreglur sambandsins – ég tel ekki raunhæft og raunar útilokað að hægt sé að fá varanlegar undanþágur fyrir m.a. sjávarútveg og landbúnað,“ segir Ingibjörg.

Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, tekur í sama streng og segist telja Ísland þegar hafa alla kosti samstarfs við Evrópuþjóðirnar með EES-samningnum.

„… og tel óráð að taka við öllum ókostunum líka með því að ganga í sambandið. Okkar sérstaða nýtist best við óbreytt fyrirkomulag.“

Þingmenn Miðflokksins segja nei og það gera þingmenn Sjálfstæðisflokksins líka. Vísir/Lýður Valberg

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingkona Miðflokksins, segir að ríki fari ekki í aðildarviðræður öðruvísi en að sækja um aðild og því segi hún nei.

„Það að senda inn umsókn til að fara í aðildarviðræður er ekki ferli eins og um viðskiptasamning væri að ræða heldur aðildarsamningur, í því felast fyrst og fremst viðræður um hvernig og á hve löngum tíma við aðlögum okkur að Evrópusambandinu. Því má í öllum stórum dráttum sjá hvað við munum fá með aðild með því einfaldlega að skoða heimasíðu Evrópusambandsins og ég tel hagsmunum Íslands betur borgið utan Evrópusambandsins,“ segir Nanna Margrét.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segist sömuleiðis ætla að segja nei „til að opna ekki flóðgáttirnar” eins og Carl Baudenbacher orðaði það.“

„Öll reynsla liðinna ára hefur verið áminning um mikilvægi þess að við getum ráðið okkur sjálf og tekið ákvarðanir sem henta okkur út frá okkar aðstæðum. Ég hef sjálfur upplifað hvernig hægt var að nýta fullveldisréttinn til að bjarga Íslandi á meðan ESB fór úr einni krísu í aðra,“ segir hann.

EES-samningurinn nóg

Bryndís Haraldsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, segir EES-samninginn enn duga og að hún ætli að segja nei.

„Ástæðan er einföld, ég trúi því að okkur vegni áfram betur utan Evrópusambandsins en með okkar góða EES-samning.“

Ef litið er til já-ara segir Arna Lára Jónsdóttir, þingkona Samfylkingar, að hún ætli að segja já fyrir stöðugra efnahagslíf, aukna samkeppni, unga fólkið og fleiri tækifæri atvinnu- og byggðaþróun.

„Ég vil sjá samning til að meta heildarhagsmuni Íslands og hvort þeim sé betur borgið innan eða utan ESB. Já, fyrir ný tækifæri, fyrir lægri vexti og öryggi á umrótartímum í alþjóðasamfélagi,“ segir Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingkona Samfylkingarinnar.

Óvissa í heimsmálum

Dagbjört Hákonardóttir, þingkona Samfylkingar, segir það lykilatriði að Ísland láti reyna á samningaviðræður við Evrópusambandið.

Dagbjört Hákonardóttir, þingkona Samfylkingarinnar, vill kanna hvers konar samning Ísland getur fengið. Vísir/Vilhelm

„Ég er bjartsýn á að það geti leitt til aðildarsamnings sem lagður yrði fyrir íslensku þjóðina til samþykktar eða honum hafnað í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá er sá möguleiki einnig fyrir hendi að samningar náist ekki við Evrópusambandið ef ekki verður komið til móts við íslenska hagsmuni í mikilvægum málaflokkum, svo sem sjávarútvegi og landbúnaði. Hvað sem því líður yrði Ísland áfram öflugur aðili að Evrópska efnahagssvæðinu (EES) og yrðu aðildarviðræður til þess að styrkja stöðu okkar þar til muna og gera okkur kleift að efla hagsmunagæslu til framtíðar – sem þarf að efla til muna.“

Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingar, segist ætla að segja já og nefnir, til dæmis, stöðu í heimsmálum og óvissu sem er í loftinu.

„Það er mjög skynsamlegt að bindast helstu vinaþjóðum okkar traustari höndum. Við vitum ekki hvar EES-samningurinn verður eftir tíu ár.“

Vilja vita meira

Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingar, segist vilja vita hvernig samningur getur litið út og að þjóðin fái að segja sína skoðun á því.

„Persónulega tel ég okkur sem þjóð eiga undir högg að sækja með aðild að Evrópusambandinu en við þurfum að gæta okkar hagsmuna þannig að mögulegur samningur verði ásættanlegur. Núna er aðeins fyrsta skrefið, hvort við eigum að hefja viðræður á ný. Ég segi já við því.“

Guðmundur Ingi Kristinsson er óflokksbundinn í dag en var þingmaður Flokks fólksins þar til í apríl. Hann var mennta- og barnamálaráðherra Flokks fólksins þar til í janúar. Guðmundur Ingi ætlar að segja já.

„Ég vil fá að sjá hvort þessi dómsdagsspá muni rætast. Ég vil fá að sjá hvað kemur upp úr þessum pakka. Kemur það sem er búið að vera að spá í þessum þingsal, einhver hrikaleg hörmung? Ég segi það bara eins, hvað ég geri eftir samningaviðræðurnar er á huldu. En ég óttast ekki þjóðina. Ég tel að það sé löngu tímabært að við klárum viðræður við Evrópusambandið og sjáum nákvæmlega hvað við fáum. Síðan látum við þjóðina bara segja já eða nei,“ sagði Guðmundur Ingi á þingi í vor og vísaði í ræðuna í svari við fyrirspurninni.

Kristrún segir já 29. ágúst. Vísir/Vilhelm

Tveir þingmenn Viðreisnar nefna í sínum skýringum gjaldmiðilinn, krónuna.

„Ég vil að aðildarviðræður verði kláraðar og samningur lagður fyrir þjóðina til samþykktar eða synjunar. Áhugi minn á aðild að ESB er einkum með vísan til gjaldmiðils- og gengismála og ég vil kanna hvort við fáum viðunandi samning svo möguleiki verði hér á upptöku evru,“ segir Grímur Grímsson.

Ingvar Þóroddsson segir íslensku krónuna dýrkeypta fyrir heimili og fyrirtæki og að hann vilji sjá hvers konar aðildarsamning væri hægt að semja um.

Verði að útkljá málið fyrir fullt og allt

Þá eru nokkrir sem segja tímabært að þjóðin fái að segja sína skoðun um málið og það þannig útkljáð.

„Ég vil fá allar upplýsingar á borðið og sjá samning svo við hættum að rífast um innihaldið í bók sem ekki hefur verið skrifuð. Kynnum okkur tækifærið og tökum svo afstöðu um inngöngu síðar. held að þjóðin hafi gott af því að útkljá þetta mál í eitt skipti fyrir öll og það gerum við með því að fá upplýsingar og segja já,“ segir María Rut Kristinsdóttir, þingkona Viðreisnar.

Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, segir sömuleiðis að málið verði að útkljá í eitt skipti fyrir öll.

„Ef við gerum það ekki þá munum við bara halda áfram að þræta um þetta út í hið óendanlega. Guð forði okkur frá þeim leiðindum.“

#aðrir #fleiri #nei #segja #þingmenn


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262923172d/fleiri-thingmenn-segja-nei-en-ja-og-adrir-vilja-ekki-svara

📰 Aðrar fréttir

Gagnrýnir sinnuleysi stjórnvalda í garð Bandaríkjanna
📅 05.10.2026 👁️ 1
Gagnrýnir sinnuleysi stjórnvalda í garð Bandaríkjanna
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar Alþingis, og Diljá Mist Einarsdóttir, sem situr í nefndinni fyrir hönd Sjálfstæ...
Aug­lýsinga­tekjur Rúv undir fyrir­huguðu þaki þrjú ár í röð - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
Aug­lýsinga­tekjur Rúv undir fyrir­huguðu þaki þrjú ár í röð - Vísir
Í frumvarpsdrögum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins er lagt til að framlag ríkisins til RÚV lækki ef tekjur félagsins af viðskiptaboðum ...
Leita að karlmönnunum sem tala um stóra málið – „Mjög afhjúpandi um hversu rótgróin nauðgunarmenning er í okkar samfélagi“
📅 05.10.2026 👁️ 1
Leita að karlmönnunum sem tala um stóra málið – „Mjög afhjúpandi um hversu rótgróin nauðgunarmenning er í okkar samfélagi“
„Það eru vissulega ekki allir karlmenn sem nauðga, en það eru alltof margir, og ennþá fleiri sem gera ekkert til að stöðva það. Þar liggur hundurinn g...
Idol-keppandi í lífs­tíðar­fangelsi fyrir að skjóta eigin­konu sína - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
Idol-keppandi í lífs­tíðar­fangelsi fyrir að skjóta eigin­konu sína - Vísir
Á þessum tíma stóð Flynn í sambandi við aðra konu sem hann hafði kynnst í gegnum kirkju þar sem hann söng. Kvöldið áður en morðið var framið sendi han...
The Blue Planet and Gandhi composer George Fenton dies aged 76
📅 05.10.2026 👁️ 1
The Blue Planet and Gandhi composer George Fenton dies aged 76
The musician received five Oscar nominations, and soundtracked dozens of memorable nature films.
Jeffrey Archer: Best-selling author and former politician dies aged 86
📅 05.10.2026 👁️ 1
Jeffrey Archer: Best-selling author and former politician dies aged 86
His last book, Adam and Eve, is set to release this month.
Mikið mæddi á vegum í vatnsveðri síðustu daga
📅 05.10.2026 👁️ 1
Mikið mæddi á vegum í vatnsveðri síðustu daga
Rigningar síðustu daga hafa valdið skemmdum á vegum víða um land, og malarvegir hafa orðið verst úti. Þá hafa skriður og grjót fallið á vegi á Vestfjö...
Hvað veistu um... ís­lenska hönnun? - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 2
Hvað veistu um... ís­lenska hönnun? - Vísir
Gróska hefur verið í íslenskri hönnun á ýmsum sviðum, allt frá fata- og húsgagnahönnun til grafískrar hönnunar og vöruhönnunar. Á morgun hefst átakið ...
Fun­heit í fimm ára af­mæli - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 2
Fun­heit í fimm ára af­mæli - Vísir
Allar helstu poppstjörnur landsins tróðu upp, allt frá rísandi stjörnunni Alösku og ungstirnunum Maroni Birni og Elvari Orra yfir í reynsluboltana Jóa...
Orðið á götunni: Fréttamaður í undarlegum leiðangri
📅 05.10.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Fréttamaður í undarlegum leiðangri
Athygli vakti í síðustu viku þegar fréttamaður Sýnar elti Ingu Sæland frá dyrum Menntaskólans í Reykjavík sem hélt upp á 180 ára afmæli sitt í húsinu ...
Donald Trump says a 'threat' led US to move bombers from RAF Fairford
📅 05.10.2026 👁️ 2
Donald Trump says a 'threat' led US to move bombers from RAF Fairford
The Pentagon confirmed on Sunday it had removed the B1 bombers from the base in England back to their home stations in America.
US 'watching closely' after plague researcher dies in Russia, Rubio says
📅 05.10.2026 👁️ 1
US 'watching closely' after plague researcher dies in Russia, Rubio says
The US says it is monitoring the case of a lab technician who died at a plague research centre in Siberia.
Hefur veitt stjórn VR óskorað umboð til að segja upp kjarasamningum
📅 05.10.2026 👁️ 2
Hefur veitt stjórn VR óskorað umboð til að segja upp kjarasamningum
Halla Gunnarsdóttir veitti stjórn VR í dag óskorað umboð til þess að segja upp kjarasamningum á fimmtudag. Hún segir boltann vera hjá Samtökum atvinnu...
Stjórn VR veitt óskorað umboð til að segja upp kjarasamningum
📅 05.10.2026 👁️ 1
Stjórn VR veitt óskorað umboð til að segja upp kjarasamningum
Trúnaðarráð VR hefur veitt stjórn VR óskorað umboð til þess að segja upp kjarasamningum á fimmtudag. Þetta segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR, hún ...
Fengu heimild til þess að segja upp kjara­samningum - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 2
Fengu heimild til þess að segja upp kjara­samningum - Vísir
Jakob formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að um öflugan fund hafi verið að ræða en alls sátu áttatíu manns fundinn. Fulltrúar stjórna innan félagsins...
Spain PM pins hopes on housing crisis to help win snap election
📅 05.10.2026 👁️ 2
Spain PM pins hopes on housing crisis to help win snap election
Calling of a snap election was not a knee-jerk reaction from Pedro Sánchez but a carefully thought-out manoeuvre, Guy Hedgecoe reports from Madrid.
Dísilverð hærra en það var fyrir verðlækkun um áramót
📅 05.10.2026 👁️ 2
Dísilverð hærra en það var fyrir verðlækkun um áramót
Ökumenn hafa eflaust flestir tekið eftir skörpum hækkunum á eldsneyti undanfarið. Bensínverð hefur hækkað um fjórðung frá því að skattalækkun stjórnva...
Löng bílalest og mikill viðbúnaður vegna heimsóknar Rubio
📅 05.10.2026 👁️ 3
Löng bílalest og mikill viðbúnaður vegna heimsóknar Rubio
Löng bílalest fylgdi Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, frá Keflavíkurflugvelli inn í Reykjavík. Mikill viðbúnaður er vegna heimsóknar hans...
What prompted the US bombers to leave RAF Fairford?
📅 05.10.2026 👁️ 3
What prompted the US bombers to leave RAF Fairford?
The mass evacuation of American bombers from the UK points to concern in the Pentagon, our security correspondent writes.
Landssamband veiðifélaga hyggst kæra leyfisveitingu fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði
📅 05.10.2026 👁️ 3
Landssamband veiðifélaga hyggst kæra leyfisveitingu fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði
Landssamband veiðifélaga hyggst taka þátt í að kæra rekstrar- og starfsleyfi fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Í yfirlýsingu Landssambandsins gagnrýnir...
Lögreglan í London hvetur námsmenn til að færa til göngu til stuðnings Palestínu sem fyrirhuguð er 7. október
📅 05.10.2026 👁️ 3
Lögreglan í London hvetur námsmenn til að færa til göngu til stuðnings Palestínu sem fyrirhuguð er 7. október
Lögreglan í London hvetur námsmenn til að færa til göngu til stuðnings Palestínu sem fyrirhuguð er 7. október Fréttin5. október 2026ErlentLeave a Comm...
Samtök atvinnulífsins vísa ásökunum um svik á bug
📅 05.10.2026 👁️ 3
Samtök atvinnulífsins vísa ásökunum um svik á bug
Samtök atvinnulífsins hafna öllum ásökunum um svik af hálfu þeirra, sem þau segja einstaka fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar hafa talað um, að því er ...
Tvær flugvélar voru í hættu á að fljúga á þyrlu við Reykjavíkurflugvöll
📅 05.10.2026 👁️ 3
Tvær flugvélar voru í hættu á að fljúga á þyrlu við Reykjavíkurflugvöll
Tvær smærri flugvélar voru í hættu á að rekast á þyrlu yfir Fossvoginum með stuttu millibili síðdegis þann 2. ágúst 2024.Flugmenn þeirra höfðu ekki fe...
Öflugur jarð­skjálfti í Bárðar­bungu - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 3
Öflugur jarð­skjálfti í Bárðar­bungu - Vísir
Þetta segir í tilkynningu frá náttúruvárvakt Veðurstofunnar. Nokkrir eftirskjálftar hafi fylgt í kjölfarið en allir minni en tveir að stærð. Síðast va...
Dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir líkamsárás gegn barnsmóður
📅 05.10.2026 👁️ 3
Dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir líkamsárás gegn barnsmóður
Maður var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir líkamsárás með því að hafa meðal annars slegið barnsmóður sína í andlitið, tekið hana kverkataki og s...
Meiri líkur en minni á að kjara­samningum verði sagt upp - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 3
Meiri líkur en minni á að kjara­samningum verði sagt upp - Vísir
„Akkúrat núna þá tel ég meiri líkur en minni á að við segjum upp kjarasamningum,“ sagði Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, um kjarasamninga í Reykjavík...
Tímabundið drónabann vegna heimsóknar Marco Rubios
📅 05.10.2026 👁️ 3
Tímabundið drónabann vegna heimsóknar Marco Rubios
Tímabundið drónabann verður í miðborg Reykjavíkur í dag og á morgun vegna heimsóknar Marco Rubios, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í...
Greindi frá sambandsslitum hennar og Elon Musk í dramatískri færslu - „Ég er í sárum“
📅 05.10.2026 👁️ 3
Greindi frá sambandsslitum hennar og Elon Musk í dramatískri færslu - „Ég er í sárum“
Ríkasti maður heims er einhleypur, eða það má ætla eftir að ein barnsmóðir hans, Shivon Zilis, upplýsti um sambandsslit þeirra á föstudaginn.„Það er e...
Marco Rubio kominn til landsins
📅 05.10.2026 👁️ 3
Marco Rubio kominn til landsins
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er kominn til Íslands. Hann lenti á Keflavíkurflugvelli klukkan rétt fyrir klukkan sex. Í heimsókninni æ...
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Mannúðarmál að skýrum reglum sé framfylgt – lausung bitnar á þeim veikustu
📅 05.10.2026 👁️ 3
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Mannúðarmál að skýrum reglum sé framfylgt – lausung bitnar á þeim veikustu
Við erum að taka fast á málefnum varðandi innflytjendur og viljum að það sé sjáanlegt að hér ríki festa og að við höfum yfirlit og eftirlit með hlutun...
Athafnamaðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald
📅 05.10.2026 👁️ 3
Athafnamaðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald
Íslenskur athafnamaður á sextugsaldri sem var handtekinn í Leifsstöð í gærkvöldi, eftir komuna til landsins, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald.Þ...
Sterkur skjálfti í Bárðarbungu
📅 05.10.2026 👁️ 3
Sterkur skjálfti í Bárðarbungu
Jarðskjálfti, 4,7 að stærð, varð í Bárðarbungu í Vatnajökli klukkan 17:28 í dag.Að sögn Steinunnar Helgadóttur, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Í...
Rubio lentur á Ís­landi - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 2
Rubio lentur á Ís­landi - Vísir
Hingað er ráðherrann kominn til að funda með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, og heldur hann síðan til Grikklands og Frakklands á mo...
Hafna á­sökunum um svik og benda á stjórn­völd - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 3
Hafna á­sökunum um svik og benda á stjórn­völd - Vísir
Í yfirlýsingu frá SA er vísað til umræðu síðustu daga þar sem einstakir fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar hafi „talað um að launafólk hafi verið svik...
Ekkert lát á nemendamótmælum – Einn missti hönd í sprengingu
📅 05.10.2026 👁️ 3
Ekkert lát á nemendamótmælum – Einn missti hönd í sprengingu
Ekkert lát er á mótmælum framhaldsskólanema í Frakklandi sem hafa staðið síðan í síðustu viku. Um 500 skólum var lokað að fullu eða að hluta í dag í ö...
Athafnamaður úrskurðaður í gæsluvarðhald til 9. október
📅 05.10.2026 👁️ 3
Athafnamaður úrskurðaður í gæsluvarðhald til 9. október
Íslenskur athafnamaður sem var handtekinn í Leifsstöð við komuna frá Lissabon í gærkvöldi hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 9. október. Þett...
Prisoner took his own life after terror order had 'substantial impact' on mental state, inquest finds
📅 05.10.2026 👁️ 3
Prisoner took his own life after terror order had 'substantial impact' on mental state, inquest finds
Akhtar Uddin was jailed for breaching Terrorism Prevention and Investigation Measures in 2020.
King's funding for Andrew is not for legal action against police
📅 05.10.2026 👁️ 3
King's funding for Andrew is not for legal action against police
Andrew Mountbatten-Windsor is taking action over search warrants issued ahead of his arrest in February.
Portúgalsfarinn á bak við lás og slá - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 3
Portúgalsfarinn á bak við lás og slá - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Hann hafi handtekinn í þágu rannsóknar málsins. Maðurinn var handtekinn þegar hann kom með flugi frá Port...
British Museum boss 'sorry' for Bayeux Tapestry visitor issues
📅 05.10.2026 👁️ 3
British Museum boss 'sorry' for Bayeux Tapestry visitor issues
Changes to how visitors see the Bayeux Tapestry exhibition were made after concerns over long queues and overcrowding.
Gigtarfélag Íslands fagnar 50 ára afmæli með tónleikum í Grafavogskirkju
📅 05.10.2026 👁️ 3
Gigtarfélag Íslands fagnar 50 ára afmæli með tónleikum í Grafavogskirkju
Gigtarfélag Íslands verður 50 ára föstudaginn 9. október. Af því tilefni verður efnt til afmælistónleika í Grafarvogskirkju laugardaginn 10. október k...
Réttarhöld framundan yfir ökumanni lyftarans í Lækjargötu – Ákærður fyrir manndráp af gáleysi
📅 05.10.2026 👁️ 3
Réttarhöld framundan yfir ökumanni lyftarans í Lækjargötu – Ákærður fyrir manndráp af gáleysi
Ökumaður skotbómulyftara sem olli banaslysi í Lækjargötu miðvikudaginn 13. september árið 2023 er ákærður fyrir manndráp af gáleysi og umferðarlagabro...
Úthúðar Bjarna Guðjóns eftir að samningi við Aþenu var sagt upp - „Virðist ekki hafa áhuga á að tala við fólk sem nær árangri“
📅 05.10.2026 👁️ 3
Úthúðar Bjarna Guðjóns eftir að samningi við Aþenu var sagt upp - „Virðist ekki hafa áhuga á að tala við fólk sem nær árangri“
Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari og einn af helstu forvígismönnum körfuboltafélagsins Aþenu í Efra-Breiðholti, vandar Bjarna Guðjónssyni borgarfulltr...
Thief threatens shop worker with knife in Lanzarote
📅 05.10.2026 👁️ 3
Thief threatens shop worker with knife in Lanzarote
The National Police are investigating a knife-point robbery at a clothes shop in Arrecife, after a man threatened a member of staff before escaping wi...
Ágreiningur um ágóða af álfasölu meðal deilumála SÁÁ
📅 05.10.2026 👁️ 3
Ágreiningur um ágóða af álfasölu meðal deilumála SÁÁ
Fyrrverandi forstjóra SÁÁ og framkvæmdastjórn greindi á um hvernig standa átti að ráðstöfun sjálfsaflafjár samtakanna, að sögn formanns SÁÁ.Mikill sty...
Samþykkja tillögu í tengslum við leigumál listafólks
📅 05.10.2026 👁️ 3
Samþykkja tillögu í tengslum við leigumál listafólks
Samþykkja tillögu í tengslum við leigumál listafólks Sprett­hóp­ur á að skila til­lög­um um hús­næði fyr­ir fyr­ir 15. nóv­em­ber næst­kom­andi. Ólík­...
Áhyggjuefni að meirihlutinn springi öðru sinni vegna gervigrasvallarins
📅 05.10.2026 👁️ 3
Áhyggjuefni að meirihlutinn springi öðru sinni vegna gervigrasvallarins
Sjálfstæðisflokkurinn í Suðurnesjabæ harmar að meirihlutasamstarfi við lista Samfylkingarinnar sé lokið og segir það áhyggjuefni að bæjarstjórn Suðurn...
Pentagon stops using Anthropic tools after blacklisting company, BBC told
📅 05.10.2026 👁️ 3
Pentagon stops using Anthropic tools after blacklisting company, BBC told
It labelled Anthropic a "supply chain risk" in February after the firm refused to remove safety guardrails from its tools.
Breski innanríkisráðherrann segir nær öllum konum sem reyna að komast yfir Ermarsund hafa verið nauðgað
📅 05.10.2026 👁️ 3
Breski innanríkisráðherrann segir nær öllum konum sem reyna að komast yfir Ermarsund hafa verið nauðgað
Shabana Mahmood, innanríkisráðherra Bretlands, segir nær öllum konum sem reyna að komast til landsins á smábátum frá norðurhluta Frakklands hafa verið...
Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 3
Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs - Vísir
Útgáfugleðin var haldin sunnudaginn 27. september síðastliðinn og var ekki að undra að veitingarnar hafi verið hinar glæsilegustu en í veislunni mátti...