„Við erum ekki að tala um alla sem hafa brotið af sér. Þetta er mjög afmarkað,“ segir Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins, í viðtali í Morgunblaðinu í dag.
Þar er greint frá því að Sigurður Helgi hafi lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um mannanöfn. Frumvarpið myndi heimila stjórnvöldum að synja einstaklingum um nafnbreytingu hafi þeir hlotið óskilorðsbundinn fangelsisdóm upp á þrjú ár eða meira fyrir alvarleg brot gegn almennum hegningarlögum.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að markmiðið sé að stuðla að auknu öryggi almennings og koma í veg fyrir að þeir sem gerast sekir um alvarleg brot geti með nafnbreytingu rofið tengsl við fyrra auðkenni sitt og þannig dregið úr samfélagslegum afleiðingum brota sinna.
Sigurður er flutningsmaður frumvarpsins ásamt fjölmörgum þingmönnum úr ýmsum flokkum, til dæmis Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki, Viðreisn og Miðflokki.
Sigurður segir við Morgunblaðið að þetta komi til með að verja fólk fyrir einstaklingum sem nýta sér þann möguleika að geta breytt nafni sínu í kjölfar afbrota.
„Þarna eru þetta bara alvarlegir dómar þar sem þú hefur fengið þriggja ára dóm eða meira, þetta á alls ekki við þegar einstaklingar fá á sig minniháttar dóm og þetta eru alvarlegustu brotin,“ segir Sigurður við Morgunblaðið þar sem nánar er fjallað um málið.
Hægt er að kynna sér frumvarpið nánar hér.