Deila íbúa í húsi á Kársnesi í Kópavogi rataði fyrir dómstóla í síðustu viku og ekki í fyrsta sinn. Það var í fjórða sinn sem nágrannakryturnar voru teknar fyrir hjá dómstólum landsins.
Íbúana greindi á um það hvort þvottarými í kjallaranum væri sameign eða hvort það væri í raun séreign eins íbúa hússins. Sá hafði ráðist í framkvæmdir í þvottarýminu og nágrenni þess til að koma í veg fyrir að aðrir nýttu það. Hann sagðist vera eini eigandinn að þvottarýminu þrátt fyrir að hafa leyft öðrum afnot af því í 30 ár fram til 2019.
Kjallarinn er í húsi sem reist var 1952 og skiptist þá í tvær íbúðir. Síðar var báðum íbúðum skipt upp í fleiri.
Þegar íbúinn ákvað að koma í veg fyrir afnot annarra af þvottarýminu höfðaði nágranni hans mál fyrir dómstólum til að fá aðgang að því. Það gekk eftir því bæði Héraðsdómur Reykjaness og Landsréttur dæmdu nágrannanum í vil. Dómstólarnir sögðu að maðurinn yrði að breyta húsnæðinu til fyrra horfs svo aðrir gætu notað þvottarýmið.
Þetta sætti íbúinn í kjallaranum sig ekki við og reyndi í tvígang að fá málið endurupptekið. Þessari beiðni hafnaði Endurupptökudómur í bæði skiptin, síðast á fimmtudag fyrir viku. Dómararnir sögðu að þó að maðurinn hefði lagt fram ný gögn dygðu þau ekki til þess að álíta mætti sterkar líkur á að málinu yrði snúið.