BL innkallar MG3-bíla vegna aukinnar slysahættu

Skilti við BL
Mynd: BL
BL hefur sent frá sér tilkynningu um innköllun á MG3 2025 bílum.
Ástæða innköllunarinnar er sú að lendi bíllinn í árekstri getur bílstjórasætið hreyfst sem eykur líkur á slysum. BL mun koma fyrir stöðvunarkubb á sætisfestingu sem kemur í veg fyrir þessa hreyfingu.
Eigendur eru beðnir um að hafa samband við BL til að panta tíma í viðgerð.