Verðbólgan mælist nú 5,6 prósent og hefur ekki verið hærri í tvö ár. Liggur því fyrir að forsenduákvæði stöðugleikasamninganna svokölluðu eru brostin og heimilt verður að segja upp kjarasamningum um mánaðamótin. Jón Trausti Reynisson framkvæmdastjóri Heimildarinnar bendir á að það er hækkun húsaleigu sem helst hefur áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs, sem verðbólgan er reiknuð út frá.
Bendir á íslenska vítahringinn - „Þróun verðs í leigusamningum er núna grunnurinn fyrir útreikning verðbólgu“