Barnamenningardagar eru nú haldnir í fyrsta skipti á Suðurlandi. Um fjögurra daga hátíð eða daga er að ræða, sem hófst síðdegis í gær með setningu í Árborg og svo fylgdu hin sveitarfélögin á eftir. Í tilefni setningarinnar spilaði t.d. blásarasveit Tónlistarskóla Árnesinga í miðbænum á Selfossi og boðið var upp á dansatriði frá Dansakademíunni og ýmislegt fleira gert.
„Það eru öll sveitarfélögin á Suðurlandi meira og minna með og þetta er í fyrsta sinn, sem þetta er gert, að barnamenning fagni svona heild yfir allt Suðurland, þannig að við erum bara ofboðslega ánægð með þetta,” segir Hera Fjölnisdóttir, verkefnisstjóri menningar- og upplýsingadeildar Árborgar.
„Við ætlum að bjóða upp á mjög mikið af alls konar list. Það er dans, það er tónlist, það er myndlist og það eru allar listgreinar undir. Allt í boði og allt frítt og allt fyrir börn og bara alls konar,” bætir Hera við.
„Það er sniðugt að halda svona hátíð þó við vitum ekki alveg hvers konar hátíð þetta er,“ sögðu þeir Patrekur Logi Sveinsson og John Óðinn Workmann, sem eru báðir 11 ára og búa á Selfossi.
„Okkur líst mjög vel á þetta, við erum mjög spennt fyrir þessu og höldum að þetta verði bara geggjað gaman,” segir Rannveig Helga Kjartansdóttir, sem býr á Selfossi og Örn Hreinsson, sem býr líka á Selfossi bætir við. „Já, þetta er allt mjög spennandi og mörg skemmtileg atriði í boði, vonandi verður þetta bara æðislegt”.
En er nauðsynlegt að halda svona hátíð fyrir börn og unglinga?
„Já auðvitað, það er bara mjög mikilvægt út af því að unglingar eru svo stór partur af heiminum og Íslandi,” segir Rannveig Helga.