Tæp fimmtíu tonn af rusli eru hreinsuð frá skólpi hjá Norðurorku á Akureyri. Allt það sem ratar ofan í niðurfallið í eldhúsvaskinum, sturtunni eða niður í klósettið hjá Akureyringum endar í þar til gerðri hreinsistöð í Sandgerðisbótinni. Þar er það sigtað og hreinsað.
Blautklútar eru mikill skaðvaldur og geta skemmt bæði hreinsibúnað og lagnir. „Þetta er helst blautklútarnir, það er stærsta vandamálið. Síðan eru þetta eyrnapinnar, tannþráður, tannþráðurinn er töluvert vandamál. Og í rauninni allt sem fer í salernið kemur hingað niðureftir ef það leysist ekki upp á leiðinni,“ segir Stella Árnadóttir, umhverfis- og öryggisstjóri hjá Norðurorku.