Fjölmargir Hafnfirðingar hafa lagt nafn sitt við undirskriftalista á vefnum Ísland.is þar sem nýjum meirihluta Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Viðreisnar er mótmælt.
Eins og greint var frá fyrir helgi slitu Sjálfstæðismenn meirihlutaviðræðum við Framsóknarflokkinn nokkuð óvænt, en ástæðan var sögð vera trúnaðarbrestur þar sem Framsóknarmenn voru einnig í viðræðum við aðra flokka.
Í gær var svo greint frá því að Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og Viðreisn hefðu náð saman og stendur til að undirrita meirihlutasáttmála í dag.
Ekki eru allir Hafnfirðingar sáttir við þetta og á áttunda tímanum í morgun höfðu þúsund manns lagt nafn sitt við fyrrnefndan undirskriftalista. Ábyrgðarmaður listans er Tinna Björt Karlsdóttir en í lýsingu á honum segir:
„Við undirrituð mótmælum harðlega myndun þessa meirihluta í Hafnarfirði. Með þessu samstarfi er farið gegn þeim skýra vilja sem kjósendur lýstu yfir í kosningunum og því traust þeirra brotið. Framsókn var meðal stærstu sigurvegara kosninganna og fjölmargir kusu sérstaklega með það að markmiði að sjá áframhaldandi samstarf núverandi meirihluta, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Jafnframt vildu margir bæjarbúar sjá Valdimar Víðisson áfram í forystuhlutverki fyrir Hafnarfjörð. Sú ákvörðun að mynda meirihluta sem útilokar áframhaldandi þátttöku Framsóknar vekur alvarlegar spurningar um virðingu fyrir vilja kjósenda og dregur úr trausti á stjórnmálum sveitarfélagsins. Við krefjumst meiri heiðarleika, gagnsæis og virðingar fyrir vilja bæjarbúa Hafnarfjarðar. Rödd kjósenda á að skipta máli við myndun meirihluta og við val á bæjarstjóra. Með undirskrift okkar lýsum við yfir andstöðu við þessa niðurstöðu og stuðningi við að Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn fari áfram með meirihluta í Hafnarfirði.“
Á Facebook-síðu Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði hafa líka þó nokkrir skrifað athugasemdir við færslu frá því í gærkvöldi þar sem boðað er til fundar í fulltrúaráði flokksins í Hafnarfirði.
„Ég ætla rétt að vona að ráðið hafni þessu samstarfi við Samfó. Kjósendur í Hfj vilja þá alls ekki við völd,“ segir enn og annar segir: „Algjörlega glatað að ætla að mynda meirihluta með Samfylkingu.“ Einn bendir síðan á að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hafi haldið velli í kosningunum og þá hafi verið hamrað á því fyrir kosningar hvað samstarfið var gott.
Á Facebook-síðu íbúa í Norðurbænum hafa einnig myndast umræður um undirskriftasöfnunina. Þar benda sumir á að enginn einn flokkur hafi fengið hreinan meirihluta og samanlagt fylgi Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Viðreisnar sé vel yfir 50%.
„Þetta fer nú bara að verða vandræðalegt hvernig er látið. Það er öllum frjálst að reyna að mynda meirihluta á sveitastjórnarstigi. Framsókn klúðraði þessu og þá er bara eðlilegt að aðrir tali saman,“ segir til dæmis einn íbúi.