Borgarráð hefur ákveðið að afþakka risaeðlubein að gjöf, eftir tillögu borgarstjóra þess efnis.
Þetta kemur fram í fundargerð ráðsins, sem kom saman til fundar í gær.
Athygli vekur að borgaryfirvöld skipuðu svonefndan starfshóp um risaeðlu, í janúar 2023, eftir að samtökin Leap Lab lýstu því yfir að þau vildu afhenda Reykjavíkurborg um 650 milljóna ára gamla beinagrind af risaeðlu frá Wyoming.
Tengist ekki náttúrusögu Íslands
„Skilmálar þess að þiggja gjöfina var að beinagrindin yrði höfð til sýnis á safni eða sýningu í Reykjavík,“ segir í greinargerð starfshópsins, þar sem segir að hann meti það svo að yrði gjöfin þegin myndi það setja kröfu á borgina að standa fyrir vandaðri sýningu sem setti efnið í rétt samhengi til að höfða til þeirra markhópa sem efnið á erindi við, m.a. skólabarna.
„Það mun óhjákvæmilega fylgja töluverður kostnaður og óvissuþættir og margir [sic]. Efnið tengist ekki náttúrusögu Íslands og sýningarhald af þessum toga er ekki á starfssviði borgarinnar,“ segir í greinargerðinni.
„Að lokum leggur starfshópurinn áherslu á það að í ljósi þeirra tíðinda að Leap Lap hyggist gefa Perlunni sambærilega gjöf, bein úr risaeðlum og þrívíddarmódel, eru upphaflegar forsendur Reykjavíkurborgar breyttar.“