Áfengisnetverslanir hér á landi eru komnar til að vera og einkennilegt er að löggjafinn horfist ekki í augu við þá staðreynd.
Þetta er mat Benedikts S. Benediktssonar, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu.
Áfengisnetverslanir hér á landi eru nú á þriðja tug talsins. Sölufyrirkomulagið er samkvæmt áfrýjuðum héraðsdómi ólögmætt en samkvæmt Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra liggja lagabreytingar ekki í loftinu.
Lögin eigi að endurspegla raunveruleikann
Telur Benedikt löngu tímabært að breytingar verði gerðar á áfengislöggjöf hér á landi.
„Við höfum verið þeirrar afstöðu að það þurfi að sjálfsögðu að gera breytingar á lögunum og koma þeim í það stand að þau endurspegli raunveruleikann í dag en ekki raunveruleikann fyrir 30 árum síðan.“
Segir Benedikt að fyrirkomulag áfengissölu á Íslandi sé barn síns tíma. Leyfa ætti einkaaðilum að halda utan um sölu innan skýrs regluverks.
„Það er bara mjög einkennilegt“
Áfengislöggjöfin hefur ekki verið tekin sérstaklega til umræðu af hálfu ríkisstjórnarinnar en ekki er útlit fyrir að breytingar verði gerðar að svo stöddu þrátt fyrir að töluverð óvissa ríki um lögin sér í lagi í ljósi fyrrnefnds héraðsdóms.
„Það er bara mjög einkennilegt, sérstaklega þegar haft er í huga að þessar netverslanir eru starfandi hér. Þessi starfsemi er komin til að vera og það þarf að reglusetja hana þannig að það sé sátt um hvernig þetta lítur út,“ segir Benedikt.
Lengi hefur erlendum netverslunum verið heimilt að senda áfengi hingað til lands og því yrði sérstakt að mati Benedikts að leyfa ekki íslenskum aðilum að starfa á sama grundvelli. Þá yrði erfitt að setja takmarkanir á erlenda netverslun ef ætlunin væri að stemma stigu við sölufyrirkomulaginu.
„EES-samningurinn á að tryggja frjálst flæði vöru við landamæri og frjálsan vöruflutning. Það setur aðildarríkjum samningsins í raun stólinn fyrir dyrnar þegar kemur að því að loka fyrir erlendar verslanir inn í landið. Auðvitað er löngu tímabært að löggjafinn hysji upp um sig buxurnar og reyni að taka samtalið um hvernig menn vilja að þetta líti út,“ segir framkvæmdastjórinn.
Einkaleyfi ÁTVR tímaskekkja
Á síðasta kjörtímabili lögðu nokkrir þingmenn Viðreisnar fram frumvarp sem fól það í sér að netverslun með áfengi yrði heimiluð. Frumvarpið náði þó ekki fram að ganga.
Benedikt er þeirrar skoðunar að ganga ætti mun lengra en bara að leyfa netverslun með áfengi. Einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis samkvæmt áfengislögum segir hann vera tímaskekkju. Það væri þó gott fyrsta skref að greiða götu netverslunar með áfengi.
„Það væri allavega einhvers konar fyrsta skref ef það þyrfti að taka þetta í hægari skrefum til að fá einhverja reynslu á þetta og draga úr ótta og eitthvað þess háttar.“
