Veikindadögum hjá starfsfólki fjölskyldusviðs Árborgar hefur fækkað mikið.
Fræðsludagurinn hófst klukkan hálf níu í morgun í íþróttahúsi Vallaskóla á Selfossi með ávarpi bæjarstjóra og svo tók hvert erindið við af fætur öðru og fjölbreyttar vinnustofur verða í allan dag.
Heiða Ösp Kristjánsdóttir er sviðsstjóri fjölskyldusviðs.
„Árið 2025 fjölgaði íbúum um tæplega 600 þannig að við þurfum að halda vel í að byggja upp innviðina og vernda þann góða mannauð sem við erum með í sveitarfélaginu og við viljum þjónusta okkar íbúa vel,” segir Heiða Ösp.
Hvernig gengur hjá skólunum, leikskólunum og grunnskólunum að taka á móti öllu þessu nýja fólki?
„Það gengur bara mjög vel. Við erum núna að klára að byggja okkar nýjasta grunnskóla,” segir Heiða Ösp.
Svo er verið að byggja sex nýjar deildir við leikskólann Jötunheima á Selfossi en sá skóli verður 12 deilda. Um 2.400 börn verða í leik- og grunnskólum Árborgar í vetur. Fram kom í erindi Heiðu Aspar í morgun að veikindum starfsmanna á fjölskyldusviði hefur fækkað mikið.
„Þarna var ég að vitna í tilraunaverkefni sem við vorum að hlúa sérstaklega að í tveimur stofnunum og vorum að skoða með því að setja á aukna fræðslu og einstaklingsviðtöl og fleira, sem gáfu góðan árangur en við viljum alltaf að fólkinu okkar líði vel og leggjum mjög mikið upp úr því að finna leiðir til að draga úr veikindafjarveru starfsfólki til heilla,” segir Heiða Ösp.