Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu - Vísir
Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu - Vísir
📅 2026-04-22 14:10:12👁️ 4 lesið
„Það er mjög fyndið hvað það koma enn margir hingað að leita að ís þannig að ég þarf eiginlega bara að vera með frostpinna hérna á bak við, þannig að fólk fari ánægt heim,“ segir Teitur Árni sem í síðustu viku opnaði bílasöluna Bílskúrinn við Austurströnd á Seltjarnarnesi.
„Ég veit eiginlega ekki hvernig á að lýsa þessu en þetta small einhvern veginn bara allt bara svona fullkomlega saman,“ segir Teitur Árni sem var á síðasta ári sínu í menntaskóla þegar hann fór að fikra sig hægt og hljótt inn í bransann með innflutningi bíla frá Evrópu.
Svalur gaur í menntó
„Þá var ég mest í þessu bara fyrir sjálfan mig og það var gaman að vera alltaf á nýjum bílum sem ég seldi síðan alla með fínum hagnaði. Maður tók bara smá áhættu og fór svo bara á fullt í þetta og þannig varð þetta eiginlega bara vinnan mín.“
Á meðan Teitur Árni var bílasali og innflytjandi samhliða skólanum skipti hann jafn ört um bíla og þeir sem hann var að nota seldust. „Sumir seldust fljótt, aðrir ekki, og ætli ég hafi ekki verið á nýjum bíl á svona þriggja mánaða fresti,“ segir hann og getur ekki neitað því að með því að birtast reglulega á nýjum kagga gæti hann hafa talist frekar svalur gaur í menntó. „Já, það mætti segja það.“
Yngstur á Íslandi
Bílasöluævintýri menntaskólanemans gekk það vel að Teitur Árni byrjaði í hálfu starfi hjá bílasölunni Draumabílum. „Síðan langaði mig bara einhvern veginn að gera þetta sjálfur og ákvað að opna mína eigin bílasölu. Þá fór ég að leita að staðsetningu og svo púslaðist þetta bara einhvern veginn svona saman hægt og rólega.“
Teitur Árni renndi hýru auga til Austurstrandarinnar þaðan sem ísbúð Huppu flutti nýlega, um rétt rúman kílómetra, úr póstnúmeri 170 yfir á Ægisíðu í 107.
„Ég þurfti pláss og hringdi í Orkuna sem á húsnæðið og fékk að vita að Huppa væri að færa sig og plássið væri laust í febrúar og opnaði svo bara í síðustu viku,“ segir Teitur Árni sem ætla má að sé yngsti bílasali landsins. „Ég veit um einn sem er ári eldri en ég hef ekki heyrt um neinn sem er yngri.“
Góð markaðsstaðsetning
Þótt ýmis rekstur, meðal annars blómaverslun og ísbúð Huppu, hafi verið stundaður á blettinum við Austurströnd í gegnum áratugina tengja flest hann líklega við bensínsölu.
Þar reistu Olís og Shell fyrstu bensínstöðina snemma á níunda áratugnum og ráku hana sameiginlega þar til Orkan tók við dælunum og þannig má segja að með bílatengingunni haldi Teitur Árni ákveðinni sögulegri samfellu.
„Fólkið á Nesinu er búið að vera dálítið forvitið um hvað væri að koma hérna,“ segir Teitur Árni og því ljóst að staðsetningin hefur í sjálfri sér umtalsvert markaðsgildi. Bæði þar sem fólk leggur enn leið sína þangað í leit að Huppuís auk nokkuð almenns áhuga Seltirninga á framtíð viðskipta við Austurströnd 7.
Vinsælir pallbílar
Teitur Árni byggir rekstur Bílskúrsins á grunninum sem hann lagði þegar hann var í menntaskóla og leggur höfuðáherslu á innflutning bifreiða frá Evrópu og Bandaríkjunum. Þar fyrir utan tekur hann, eins og vera ber, við notuðum bílum til endursölu.
Þvert á það sem ef til vill mætti ætla í ljósi rekistefnu Bandaríkjanna í tollamálum segir Teitur Árni innflutninginn þaðan ganga smurt. „Ég hef allavega ekki fundið fyrir neinu. Þetta er ekkert flókið og mér finnst eiginlega bara auðveldara að flytja inn frá Bandaríkjunum en Evrópu.“Austurströnd 7 á Seltjarnarnesi er heppilegur staður fyrir Bílskúrinn hans Teits Árna en fyrir utan heilbrigða forvitni um nærumhverfi sitt leggur fólk enn leið sína þangað í ísbíltúrum.Vísir/Vilhelm Teitur Árni segist flytja mest inn af rafdrifnum pallbílum enda vinsældir þeirra miklar um þessar mundir og þá fær hann einmitt frá Bandaríkjunum. „Annars get ég svo sem alveg flutt inn hvað sem er; díesel og gamla kagga en rafmagnsbílarnir eru vinsælastir núna.“
Harður bransi
Teitur Árni segir samkeppnina í bílasölunni vissulega harða enda margir um hituna. „Já, það er hörku samkeppni. Ég veit ekki hvað bílasölurnar eru margar en þær eru örugglega eitthvað í kringum 30 á landinu en það er allavegana engin samkeppni á Nesinu.“
Aðspurður segist hann aldrei hafa verið neinn sérstakur bíladellukall og hann hafi miklu frekar farið út í þennan bransa einfaldlega vegna þess að hann er sölumaður í eðli sínu.
„Mér finnst bara gaman að selja, finnst skemmtilegt að kynnast nýju fólki og bara almennt að tala við fólk,“ segir Teitur Árni sem, þrátt fyrir þennan eiginleika, hefur enn ekki náð því að taka á móti manneskju í leit að ís og senda hana heim á nýjum bíl.
Bíllausi bílasalinn
Bílasalinn ungi stendur í ströngu á fleiri vígstöðvum því hann er einnig ungur faðir. „Ég er með lítinn tíu mánaða strák heima þannig að maður reynir sitt besta og að vera eins mikið og maður getur á báðum stöðum. Þótt maður sé ungur þá þarf maður ekkert að vera að missa vitið yfir því að vera ekki að djamma allar helgar eða vera einhver aumingi.“
Þú hefur átt frekar marga bíla, kannski frekar miðað við aldur en fyrri störf. Hvernig bíl ertu á núna?
„Heyrðu, ég á engan bíl eins og er. Ég er bara á lánsbíl frá mömmu,“ segir yngsti bílasali landsins sem situr einn að markaðnum á Seltjarnarnesi.
A 62-year-old motorcyclist has died after losing control of his bike and leaving the road on the TF-1 motorway in Costa Adeje, south Tenerife, earlier...
Þetta segir í athugasemd veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Vindurinn geti reynst varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Vindkort fyrir kl. 2...
Það er þrenging frá því sem áður var að öll áform um vindmyllur yfir 30 metra hæð þurfi að fara gegnum rammaáætlun, segir forstjóri Samorku. Það liggi...
Tveir eru látnir eftir að lítil flugvél hrapaði á húsþak á einbýlishúsi í Þýskalandi klukkan 11 í morgun. Þeir voru báðir farþegar í vélinni.Slysið va...
Frá þessu greinir hann í Facebook-færslu þar sem hann rekur mál sitt nokkuð ítarlega. Í færslu sinni, sem er nokkuð ítarleg, segir Jón Viðar að hann h...
Þetta staðfestir Einar Sigurjónsson aðalsvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi í samtali við fréttastofu. „Þarna var í rauninni bara bráðaveikindati...
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á Suðurlandi rétt fyrir klukkan 15 til að sinna sjúkraflugi. Þetta staðfestir Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðast...
Slökkvilið var kallað út vegna bíls sem stóð í ljósum logum á Hellisheiði á fjórða tímanum í dag. Búið er að slökkva eldinn.Þetta staðfestir Halldór Á...
Þetta segir Áskell Harðarson sem flúði heimilið sem hann dvaldi í ásamt fjölskyldu sinni í úthverfi Bordeaux-borgar vegna gróðurelda sem nálguðust. Al...
Landamæraeftirlit með farþegum sem koma utan Schengen-svæðisins getur tekið allt að sex sinnum lengri tíma en áður. Viðbótarfjármagn og aukamannskapur...
Kallaði til lögreglu vegna ástands hundapassara Bono fannst laus í hverfinuHvetur hundaeigendur til fyllstu varkárni eftir alvarlegt atvik í gær Mynd:...
25 ára laganemi hefur verið ákærður í tengslum við sprengju sem fannst nærri landamærum Norður-Írlands og Írlands á miðvikudag. Maður á fimmtugsaldri ...
Þetta segir skurðhjúkrunarfræðingur sem starfar í Noregi en er nú stödd í Alcorcón á Spáni þar sem systir eiginmanns hennar býr en það er í um tuttugu...
Frá því hún greindist í mars hefur baráttuhugur og elja einkennt nálgun hennar á veikindin. Hún hefur skipt meðferðarferlinu upp í fjóra leikhluta, se...
Frá því hún greindist í mars hefur baráttuhugur og elja einkennt nálgun hennar á veikindin. Hún hefur skipt meðferðarferlinu upp í fjóra leikhluta, se...
Æði margir afturhaldsseggirnir eru með böggum hildar að afloknu heimsmeistaramótinu í knattspyrnu út af fjölda þeldökkra fótboltasnillinga sem léku li...
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar Fyrir réttum 400 árum keyptu niðurlenskir kaupmenn sér eyju. Þau kaup áttu eftir að draga dilk á eftir s...
Um þriðjungur foreldra sem hafa misst samband við fullorðin börn sín telur að meðferðaraðili barnsins hafi haft áhrif á ákvörðun þess um að slíta sams...
Reglugerð Evrópusambandsins sem heimilar tæknifyrirtækjum að skanna einkaskilaboð í leit að barnaníðsefni hefur verið samþykkt í sameiginlegu EES-nefn...
„Hvatinn að þessu var að sjálfsögðu sá að Baldur hefur ekki siglt hérna yfir Breiðafjörðinn til Brjánslækjar, bara Stykkishólms, í sex vikur vegna þes...
„Hvatinn að þessu var að sjálfsögðu sá að Baldur hefur ekki siglt hérna yfir Breiðafjörðinn til Brjánslækjar, bara Stykkishólms, í sex vikur vegna þes...
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuverk, TrumpLeave a Comment Donald Trump Bandarí...
Guðrún Gunnlaugsdóttir hefur starfað sem ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur hjá Landspítalanum í áratugi og skrifaði á dögunum skoðanagrein á Vísi þar se...
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer Fréttin25. júlí 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment John Mearsheimer, sérfræðing...
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuver...
Kolefnisgjaldið sem drepur allt Fréttin25. júlí 2026Evrópusambandið, Geir Ágústsson, Innlent, SamgöngurLeave a Comment Geir Ágústsson skrifar: Haft ef...
„Þetta er búinn að vera athyglisverður sólarhringur. Við vöknuðum í gær í glampandi sól og blíðu, eins og næstum hvern einasta dag síðustu þrjár vikur...
Utanríkisráðuneyti á villigötum Fréttin25. júlí 2026Björn Bjarnason, Evrópusambandið, Innlent, StjórnmálLeave a Comment Björn Bjarnason skrifar: Inngr...
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands Fréttin25. júlí 2026Fjölmiðlar, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Bobby Fisher heitinn. Páll Vilhjál...
Þrír slökkviliðsbílar voru kallaðir út vegna elds í sumarbústað laust eftir klukkan 12 í dag. Bústaðurinn er alelda. Þetta staðfestir Guðmundur Hreins...
Þrír slökkviliðsbílar voru sendir á vettvang þar sem er þó nokkur viðbúnaður og unnið að því að ráða niðurlögum eldsins. Þetta staðfestir aðalvarðstjó...
Lísbet Guðmundsdóttir fornleifafræðingur stýrir uppgreftinum og segir að um sé að ræða verstöð sem var í notkun frá elleftu öldinni og fram á þá átján...
Nei-hópurinn hefur verið háværari en já-hópurinn en fyrir því er góð ástæða. Skilaboð já-hópsins eru einföld og mjög skýr og snýst um að þjóðin veiti ...
Þá heyrum við frá lögrelunni um alvarlega líkamsárás sem varð í Reykjavík í nótt þar sem manni var fleygt fram af svölum. Einnig tökum við stöðuna á B...
Áform Orkusölunnar um að reisa tvær vindmyllur við Lagarfossvirkjun á Héraði hafa vakið úlfúð í nærsamfélaginu. Heimastjórn leggst gegn framkvæmdinni ...
„Það endar með því að verða þarna átök milli einhverra, nokkurra ungmenna,“ segir Heimir Ríkarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuð...
Þetta segir Heimir Ríkarðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Það komu þarna tveir að heimili þessa manns, og töldu s...
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, óttast að ef erlendri fjárfestingu verði hleypt inn í íslenskan sjáva...
Bandaríski íslamski fræðimaðurinn og prédikarinn Yasir Qadhi heimsótti Ísland á dögunum og ávarpaði þar söfnuð múslima. Í ræðunni hvatti hann múslima ...
Það ríkti alveg sérstök stemning, hlaðin gleði og ljúfum minningum, þegar Vopnfirðingar fjölmenntu á ljósmyndasýninguna „Þorpið“ sem var haldin var í ...
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika Guðný Helga Sæmundsen segir sveitalífið hafa mótað sig mest. Þar hafi einfaldleiki lífsins orðið til þess...
„Ef maður fer inn á Igloo þá koma kannski upp 500 möguleikar en þegar maður hakar við „gæludýr leyfð“ í filter þá eru möguleikarnir kannski bara tveir...
Tveir menn sem voru handteknir fyrir að henda manni fram af svölum á fyrstu hæð í gærkvöld komust inn í íbúð hans í gegnum glugga. Maðurinn hafði neit...