Hugmyndir um kláf upp á topp Esjunnar hafa lengi verið til skoðunar, en fengu innspýtingu á árinu 2024 þegar Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir óskaði eftir markaðsaðilum til viðræðna um mögulega aðkomu að málinu. Morgunblaðið greinir frá því í dag að nú sé mögulega að draga til tíðinda þar sem á fjárlögum ársins 2027 er að finna heimildir til fjármálaráðherra um að ráðstafa landi Mógilsár í Reykjavík með sérleyfis- eða rekstrarleyfissamningum vegna áforma um uppbyggingu á þjónustumiðstöð og kláfi í Esjuhlíðum.
Skiptar skoðanir á „mjög áhugaverðri hugmynd“ - „Líklega hámark vitleysunnar“