Norsk yfirvöld hafa flutt 69 rússneska ríkisborgara aftur til síns heima en þeir hafa verið fastir á Svalbarða eftir að rússneskt skip sem þeir voru á var kyrrsett af norsku strandgæslunni.
Strandgæslan tók skipið yfir 2. september að beiðni úkraínska orkufyrirtækisins Naftogaz. Skipið var þá á leið til Barentsburg, sem er námubær á Svalbarða. Rússnesk fyrirtæki eru þar með námustarfsemi á grundvelli Svalbarðasáttmálans frá 1920, sem heimilar aðilum sáttmálans að vera með atvinnustarfsemi þar þó að yfirráð Noregs séu viðurkennd,
Orkufyrirtækið hefur reynt að sækja bætur til Rússa fyrir að leysa til sín eignir fyrirtækisins eftir innlimun Krímskaga í Rússland árið 2014. Réttmæti bótakröfunnar hafði verið staðfest fyrir alþjóðlegum dómstól árið 2023. Naftogaz vill að skipið, sem ber nafnið Professor Molchanov, verði selt upp í kröfuna.
Rússarnir hafa flestir verið á hóteli í Barentsburg frá kyrrsetningu en samtal hefur verið í gangi við rússnesk stjórnvöld um að flytja þá til síns heima. Það var svo gert í nótt. Alls voru 69 Rússar fluttir í nótt til Longyearbyen, stærsta bæjar Svalbarða, þaðan sem þeim var flogið til Kirkenes nærri landamærum Noregs og Rússlands. Þaðan flutti lögreglan í Finnmörk þá yfir landamærin.
Utanríkisráðuneyti Rússlands krafðist þess að kyrrsetningu skipsins yrði aflétt og sagði að kyrrsetningin væri af pólitískum hvötum. Sendiherra Noregs í Rússlandi var kallaður fyrir vegna þess. Norðmenn bentu á móti á að þeir væru ekki aðilar að málinu og bæri skylda til að framfylgja úrskurði um kyrrsetningu samkvæmt alþjóðlegum hafréttarlögum.