Forsetar Bandaríkjanna og Rússlands, Donald Trump og Vladimír Pútín, ræddust við í síma eftir að samningamenn Bandaríkjanna, þeir Jared Kushner og Steve Witkoff, ræddu við Pútín í Moskvu á laugardag. Yuri Ushakov einn af aðstoðarmönnum rússnesku ríkisstjórnarinnar upplýsti þetta í viðtali við fréttamenn í dag.
Ushakov sagði að símtalið hefði staðið yfir í klukkustund og að rætt hefði verið um það sem kom út úr heimsókn þeirra Kushners og Witkoffs. Pútín hefði meðal annars sagt Trump hvað hann gæti gert til að ljúka stríðinu. Samtalið hefði verið uppbyggilegt og mjög hreinskiptið. Ushakov bætti jafnframt við að Pútín hefði lagt áherslu á að hann hefði alls engar áætlanir um að gera neina árásir á Evrópu.