Tískan við þing­setningu: Sól­gler­augu, haustlitir og Sig­mundur Ernir stal senunni - Vísir

Tískan við þing­setningu: Sól­gler­augu, haustlitir og Sig­mundur Ernir stal senunni - Vísir

Tískan við þing­setningu: Sól­gler­augu, haustlitir og Sig­mundur Ernir stal senunni - Vísir

Herlegheitin hófust þegar Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, renndi í hlað á forsetabílnum með eiginmanni sínum, Birni Skúlasyni, og tók Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, á móti þeim.

Halla stígur út úr forsetabílnum í flottri ljósri dragt.Vísir/Anton Brink

Þórunn Sveinbjarnardóttir tekur í hönd Höllu.Vísir/Anton Brink

Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn gengu síðan fylktu liði til Dómkirkjunnar úr Alþingishúsinu þar sem fram fór guðsþjónusta. Þar mátti sjá hvaða klæðnað fólk hafði valið sér fyrir þetta hátíðlega tilefni og margir greinilega búnir að leggja púður í valið.

Björn Skúlason, séra Oddur Bjarni Þorkelsson, Halla Tómasdóttir forseti og Guðrún Karls Helgudóttir biskup.Vísir/Anton Brink

Eftir guðsþjónustuna og flutning Sönghópsins við Tjörnina á tveimur lögum setti Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, síðan Alþingi og þingmenn drógu í sæti fyrir veturinn áður en þeir héldu í kaffiboð í Smiðju. 

Anton Brink ljósmyndari fangaði þingsetninguna á mynd.

Þjóðbúningur, dragtir og lítið um sterka liti

Fremstar í flokki fylkingarinnar sem gekk frá Alþingi voru Guðrún Karls Helgudóttir í biskupsklæðum og Halla Tómasdóttir í hvítmunstraðri dragt með stóra slaufu um hálsinn. 

Halla Tómasdóttir forseti og Guðrún Karls Helgadóttir biskup fóru fremstar í flokki.Vísir/Anton Brink

Á eftir þeim fylgdu Séra Oddur Bjarni Þorkelsson, sóknarprestur í Dalvíkurprestakalli, og Björn Skúlason, eiginmaður Höllu, sem var klæddur í dökkblá jakkaföt með ljósbláan vasaklút og munstrað bindi.

Næst á eftir þeim komu forsætisráðherra og forseti Alþingis, hinar valkyrjurnar tvær, aðrir ráðherrar og þingmenn ríkisstjórnarinnar og þar á eftir þingmenn stjórnarandstöðunnar.

Kristrún glæsileg í peysufötunum með röndótta svuntu og brúna slaufu. Við hlið hennar gekk Þórunn Sveinbjarnar og á eftir þeim Logi Einarsson, Inga Sæland og Þorgerður Katrín.Vísir/Anton Brink

Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, hefur oft klæðst smart drögtum við þingsetningu en brá út af vana sínum í fyrra og klæddist peysuötum frá tengdamóður sinni heitinni með gylltum útsaumi og bleikri slaufu. Maður breytir ekki vinningsformúlu og endurtók hún leikinn í ár.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, rokkar oft litríka jakka á þinginu en var í dag klædd í svartar buxur, stóran ljósan jakka og rauða blússu undir honum. 

Inga Sæland og Þorgerður Katrín í sínu fínasta pússi.Vísir/Anton Brink

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra og formaður Flokks fólksins, klæddist hins vegar svarthvítri köflóttri kápu, gulllituðum bol þar undir og bar stærðarinnar sólgleraugu á andlitinu eins og hún hefur gert reglulega upp á síðkastið. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, var hins vegar klædd í sérlega smart hvíta dragt og í brúnni blússu undir henni.

Hanna Katrín rokkaði stór sólgleraugu, stundum kölluð auðmannagleraugu, meðan Logi Einarsson var í jakkafötum og vesti með munstrað bindi.Vísir/Anton Brink

Inga var ekki sú eina sem bar sólgleraugu, Hanna Katrín Friðriksson var einnig með töff sólgleraugu sem pössuðu vel við silfurlitaða blússu og perlufesti um hálsinn. Alma Möller heilbrigðisráðherra var síðan í stílhreinum dökkbláum síðkjól með tvær perlufestar um hálsinn.

Alma Möller í flottum svörtum kjól með perlufestar og gulllitaða tösku.Vísir/Anton Brink

Hattur Sigmundar vakti lukku

Karlkyns ráðherrar og þingmenn ríkisstjórnarinnar voru heldur dökklitaðir í fatavali í ár, flestallir í dökkbláum jakkafötum með nokkuð lágstemmd bindi. Þar má nefna Eyjólf Ármannsson, Jóhann Pál og Daða Má.

Jóhann Páll og Eyjólfur Ármannsson ákváðu að vera stílhreinir og hefðbundnir.Vísir/Anton Brink

Úr flokki Samfylkingarinnar voru þó tveir karlkyns þingmenn sem sýndu meiri tilraunamennsku. Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, var í grábrúnum jakkafötum með munstrað bindi. Sigmundur Ernir Rúnarsson gaf honum ekkert eftir í dökkbláum jakkafötum með flottan hatt á kollinum.

Ásta Lóa var flott í vínlitaðri dragt.Vísir/Anton Brink

Sigmundur Ernir er einn af ótvíræðum siguvegurum þingsetningarinnar, allavega hvað tískuna varðar. Minnti á einkaspæjarann Philip Marlowe sem Humphrey Bogart lék í The Big Sleep um árið.Vísir/Anton Brink

Arna Lára Jónsdóttir, Ísafjarðarkrati í Samfylkingunni, klæddist glæsilegum bláum kjól eftir íslenska hönnuðinn Anítu Hirlekar. María Rut Kristinsdóttir í Viðreisn var í svörtu í tilefni dagsins með glæsilega hálsesti.

María Rut var í svörtum kjól.Vísir/Anton Brink

Lítið var um sterka liti fyrir utan tvær þingkonur sérstaklega, Jónína Björk Óskarsdóttir úr Flokki fólksins klæddist flottri rauðri kápu við svartan kjól og Dagbjört Hákonardóttir í Samfylkingunni var í eldrauðu pilsi og hvítri blússu. Samfylkingarkonan Ragna Sigurðardóttir var svo í ansi smart hvítri teinóttri dragt.

Jónína Björk Óskarsdóttir í flottri rauðri kápu og Arna Lára Stefánsdóttir í bláum kjól frá Anítu Hirlekar. Jónína bar merki Guls septembers eins og margir aðrir.Vísir/Anton Brink

Ása Berglind Hjálmarsdóttir í svörtu og Dagbjört Hákonardóttir í rauðu Samfylkingarpilsi og hvítri blússu.Vísir/Anton Brink

Ragna Sigurðardóttir var í hvítri teinóttri dragt.Vísir/Anton Brink

Yeoman, ljósir litir og slæða frá ömmu

Úr hópi stjórnarandstöðunnar var Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, í bláum Yeoman-kjól með gullblómamynstri. Samflokkskona hennar, Ingibjörg Davíðsdóttir, klæddist grábrúnum samfestingi með Miðflokksnælu á brjóstinu.

Ingibjörg Davíðsdóttir, Snorri Másson, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og Karl Gauti Hjaltason úr Miðflokknum.Vísir/Anton Brink
Ingibjörg Davíðsdóttir í mosagrænum samfestingi og Nanna Margrét í Yeoman-kjól.Vísir/Anton Brink

Þá var Sigríður Andersen einkar töff með stór sólgleraugu í víðum grænbrúnum buxum, hvítri blússu og stælí munstraðri kápu sem minnti á Jean Paul Gaultier.

Sigríður Andersen var töff að vanda.Vísir/Anton Brink

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, var í sérlega flottum ljósbláum kjól og í jakka í stíl.

Guðrún Hafsteinsdóttir glæsileg og Stefán Vagn reffilegur í ljósbláum jakkafötum.Vísir/Anton Brink

Af flokkssystrum hennar var Rósa Guðbjartsdóttir í ljósbrúnum kjól með sólgleraugu, Hildur Sverrisdóttir í svörtum bol og ljósbrúnu pilsi og Bryndís Haraldsdóttir í flottum hvítum samfestingi og brúnni kápu. 

Hildur Sverrisdóttir í svörtum bol og brúnu pilsi. Rósa Guðbjarts var að vinna með svipaðan lit á sínum kjól.Vísir/Anton Brink

Ingveldur Anna Sigurðardóttir úr Sjálfstæðisflokknum var á sinni fyrstu þingsetningu eftir að hún kom inn fyrir Vilhjálm Árnason í vor. Hún var í svörtum kjól með sjal handprjónað af ömmu hennar og hundrað ára gamla gullnælu sem amma hennar gaf henni.

Þjóðbúningurinn enn í tísku

Kristrún var ekki sú eina sem klæddist íslenska þjóðbúningnum. Framsóknarkonurnar Halla Hrund Logadóttir og Ingibjörg Isaksen gerðu það einnig, Halla í upphlut með blómamynstraðri svuntu og Ingibjörg í peysufötum með hvítri slaufu. Kolbrún Áslaugar  Baldursdóttir úr Flokki Fólksins var sömuleiðis í upphlut.

Ingibjörg Isaksen og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir voru báðar í þjóðbúningi.Vísir/Anton Brink
Ingibjörg var í nokkuð módern útfærslu af peysufötunum.Vísir/Anton Brink
Halla Hrund Logadóttir í upphlut með blómasvuntu.Vísir/Anton Brink

Diljá Mist Einarsdóttir úr Sjálfstæðisflokknum hefur jafnan vakið athygli fyrir frumlegan klæðaburð við þingsetninguna. Fyrir þremur árum var hún klædd í upphlutsvesti móður sinnar sem var áður í eigu Bryndísar Kristjánsdóttur, eiginkonu Jóns úr Vör, og í fyrra klæddist hún þrjátíu ára gömlu dressi af móður sinni sem var keypt í Spakmannsspjörum. Í ár var hún hins vegar í víðum hvítum buxum, ljósbláu vesti og með flott sólgleraugu.

Diljá Mist stal ekki neinum fyrirsögnum líkt og síðustu ár en var þó flott í bláu vesti og víðum hvítum buxum.Vísir/Anton Brink

Karlar stjórnarandstöðunnar tóku ekki mikla sénsa, ekki frekar en karlarnir í ríkisstjórn, nema Stefán Vagn Stefánsson, Framsóknarmaður og Skagfirðingur, sem klæddist ljósbláum jakkafötum og fallega munstruðu bindi.

Þingmenn leggi mikla vinnu í klæðaburðinn

Fréttamennirnir Elísabet Inga Stefánsdóttir og Sunna Sæmundsdóttir fylgdust með þingsetning og ræddu meðal annars við Ellen Loftsdóttur stílista um tísku þingmanna.

„Þetta er einn flottasti Alþingis-„catwalk“ sem ég hef séð,“ sagði Ellen og bætti við að þingmenn hefðu komið sér sérstaklega skemmtilega á óvart.

Ellen var sérstaklega ánægð með Sigmund.Vísir/Anton Brink

„Mér finnst svo gaman hvað þetta er farið að skipta máli og hvað fólk leggur mikla vinnu í að líta vel út, líða vel og vera þjóðinni til sóma. Mér finnst líka gaman að sjá hvað karlmennirnir eru svolítið að spýta í lófana, Sigmundur Ernir fannst mér slá í gegn,“ sagði hún.

Halla forseti hefði verið einkar glæsileg í ljósri dragt með Chanel-væbi sem hefði farið hári hennar og húðlit vel.

Halla klæddist ljósri dragt.Vísir/Anton Brink

„Mér finnst gaman að sjá að það glittir í þjóðbúninginn því mér finnst við eiga að upphefja hann og vera stolt af þessum fallega búning sem við eigum. Kristrún kom með svolítið skemmtilegt tvist á hann, ekki þetta klassíska og svolítið brúnn,“ sagði Ellen.

Heldurðu að þau séu ekki búin að pæla í þessu dressi lengi? Heldurðu að einhver hafi vaknað og tosað eitthvað út úr fataskápnum?

„Mér sýndist ekki og ég sé að það eru fagmenn að störfum og ég veit að það stendur fólk í mínum geira við bakið á sumu af þessu fólki. Mér finnst það sjást að það er verið að ráða fagmenn til verka og það er ótrúlega gaman,“ sagði hún.

Ekki hefði borið mikið á íslenskri hönnun eins og hefði verið síðustu ár. Fátt sé á bannlistanum nema kannski leður, fólk þurfi einfaldlega að lesa í aðstæður og klæða sig eftir viðburðum. Hægt er að horfa á viðtalið við Ellen í heild sinni hér að neðan:

#haustlitir #sólgleraugu #tískan #við #þingsetningu


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262932086d/tiskan-vid-thing-setningu-sol-gler-augu-haustlitir-og-sig-mundur-ernir-stal-senunni

📰 Aðrar fréttir

LA PERDITION – Glötun Frakklands
📅 25.10.2026 👁️ 0
LA PERDITION – Glötun Frakklands
LA PERDITION – Glötun Frakklands Fréttin25. október 2026Erlent, Hælisleitendur, Helga Dögg SverrisdóttirLeave a Comment Helga Dögg Sverrisdóttir skrif...
Taika Waititi greinir frá sérstakri reglu í hjónabandinu sem hann og Rita Ora reyna að fylgja
📅 25.10.2026 👁️ 0
Taika Waititi greinir frá sérstakri reglu í hjónabandinu sem hann og Rita Ora reyna að fylgja
Leikarinn og leikstjórinn Taika Waititi hefur opinberað eina reglu sem hann og eiginkona hans, söngkonan Rita Ora fylgja í sambandi sínu, í þeim tilga...
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri
📅 25.10.2026 👁️ 0
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri Fréttin25. október 2026InnlendarLeave a Comment Miklar óeirðir brutust út í...
Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Lands­virkjunar“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 0
Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Lands­virkjunar“ - Vísir
„Grundvöllurinn er traust og traust er mjög flókið fyrirbrigði sem þarf að vera til staðar þegar menn eru að sinna svona starfi og þá er líka mikilvæg...
Nichole spyr Elliða hvort fjölmenningarfulltrúi starfi hjá Ölfusi
📅 25.10.2026 👁️ 0
Nichole spyr Elliða hvort fjölmenningarfulltrúi starfi hjá Ölfusi
Nichole Leigh Mosty, fyrrverandi þingkona Bjartrar framtíðar og fyrrverandi forstöðukona Fjölmenningarseturs, spyr Elliða Vignisson, bæjarstjóra Ölfus...
Loka Vestur­bakkanum á kjör­dag Ísraela - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 0
Loka Vestur­bakkanum á kjör­dag Ísraela - Vísir
Þetta hefur BBC eftir ísraelska hernum en þingkosningar fara fram í Ísrael á þriðjudaginn. Lokunin nái sérstaklega til verkamanna „um alla Júdeu, Sama...
Serbar ganga til skyndikosninga - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 0
Serbar ganga til skyndikosninga - Vísir
Ðuro Macut forsætisráðherra óskaði eftir því að Aleksandar Vucic, forseti og flokksbróðir hans, ryfi þing og boðaði til kosninga þann 9. september síð...
Segir að endurskoða þurfi breytingar á Loftbrú
📅 25.10.2026 👁️ 2
Segir að endurskoða þurfi breytingar á Loftbrú
Þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi telur að innviðaráðherra þurfi að endurskoða boðaðar breytingar á niðurgreiðslu vegna Loftbrúar. Sjö þú...
Pawel Bartoszek: Andstaða við bókun 35 er einhvers konar hugmynd um fullveldið
📅 25.10.2026 👁️ 2
Pawel Bartoszek: Andstaða við bókun 35 er einhvers konar hugmynd um fullveldið
Ef Alþingi samþykkir bókun 35 á næstu vikum er mál ESA gegn okkur orðið ansi veikt. Pawel Bartoszek, formaður þingflokks Viðreisnar og fyrrverandi for...
Um­deildur sýknudómur þegar haft al­var­legar af­leiðingar - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Um­deildur sýknudómur þegar haft al­var­legar af­leiðingar - Vísir
Brasilíumenn ganga að kjörborðinu í dag í seinni umferð forsetakosninga. Val kjósenda stendur á milli sitjandi forseta og frambjóðanda hægrimanna sem ...
Málverkið af danska kónginum
📅 25.10.2026 👁️ 1
Málverkið af danska kónginum
Málverkið af danska kónginum Í Frið­riks­borg­ar­höll­inni á Norður – Sjálandi má sjá mál­verk af dönskum þjóð­höfð­ingjum, langt aftur í aldir. Fyrst...
Ísraelsher hrekur íbúa Hebron frá heimilum sínum
📅 25.10.2026 👁️ 2
Ísraelsher hrekur íbúa Hebron frá heimilum sínum
Ísraelsher ætlar að loka öllum landamærastöðvum á Vesturbakkanum á þriðjudag þegar kosningar eru í Ísrael.Tvö þúsund Palestínumenn voru hraktir frá he...
Skiljan­lega skiptar skoðanir á stærstu kerfis­breytingu í ára­tug - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Skiljan­lega skiptar skoðanir á stærstu kerfis­breytingu í ára­tug - Vísir
Ráðherrann kynnti fyrir nokkrum vikum nýjar breytingar á umdæmum lögreglunnar þar sem fækka á þeim úr sjö í þrjú. Áformin hafa sætt töluverðri gagnrýn...
Lögregla kölluð til vegna líkamsárásar í Skeifunni
📅 25.10.2026 👁️ 2
Lögregla kölluð til vegna líkamsárásar í Skeifunni
Lögregla var kölluð að Hagkaup í Skeifunni um sjöleytið í gærkvöld. 18 ára karlmaður óskaði eftir aðstoð eftir að hópur manna réðst á hann með barsmíð...
Vetrartími í Evrópu
📅 25.10.2026 👁️ 2
Vetrartími í Evrópu
Vetrartími tók gildi í Evrópu í nótt og klukkan var þá færð klukkustund aftur.Tímamunurinn milli Íslands og vesturhluta Evrópu og Skandinavíu er nú ei...
Orðið á götunni: Pilsfaldakapítalistar vilja maka krókinn – á okkar kostnað!
📅 25.10.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Pilsfaldakapítalistar vilja maka krókinn – á okkar kostnað!
Orðið á götunni er að vert sé að staldra við og skoða vandlega þau áform sem nú eru uppi um rekstur Litla spítalans, sem boðað er að hefji senn starfs...
Fluttur á bráða­mót­töku eftir líkams­á­rás í Skeifunni - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Fluttur á bráða­mót­töku eftir líkams­á­rás í Skeifunni - Vísir
Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að tilkynning barst um líkamsárás í hverfi 108 og sé málið í rannsókn. Um hóp manna hafi verið a...
Manstu þegar 112 var nýtt neyðarnúmer?
📅 25.10.2026 👁️ 2
Manstu þegar 112 var nýtt neyðarnúmer?
Um þetta leyti á árinu 1995 var vinna við innleiðingu á einu neyðarsímanúmeri fyrir allt landið langt á veg komið. Fram að því hringdi fólk í símanúme...
„Ég var al­veg skelfingu lostinn“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
„Ég var al­veg skelfingu lostinn“ - Vísir
Tolli var vel upp lagður þegar hann hitti blaðamann, nýkominn úr jóga þar sem hann segist vera nýgræðingur. Sem kemur á óvart, eins mikið og hann hefu...
Föstudagar fortíðar: „Kannski er ágætt að lenda í kulnun þegar maður er 14 ára, þá lendir maður ekkert aftur í því“
📅 25.10.2026 👁️ 1
Föstudagar fortíðar: „Kannski er ágætt að lenda í kulnun þegar maður er 14 ára, þá lendir maður ekkert aftur í því“
Ida Karolina Harris tók þátt í loftslagsverkföllunum á Austurvelli í sjö ár, lengur en flestir. Hún segir að það hafi verið margt jákvætt við þátttöku...
Bar­áttan um Brasilíu - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Bar­áttan um Brasilíu - Vísir
Flávio Bolsonaro hafði betur gegn hinum áttræða Lula í fyrri umferð forsetakosninganna þann 4. október síðastliðinn. Hann náði þó ekki hreinum meirihl...
Neglur losnuðu hjá nær 40% notenda þyngdarstjórnunarlyfja
📅 25.10.2026 👁️ 1
Neglur losnuðu hjá nær 40% notenda þyngdarstjórnunarlyfja
Þyngdarstjórnunarlyf geta aukið líkur á að neglur losni frá naglabeði samkvæmt nýrri rannsókn. Nær 40% þátttakenda sem notuðu GLP-1 þyngdarstjórnunarl...
Lægir víðast hvar á morgun
📅 25.10.2026 👁️ 2
Lægir víðast hvar á morgun
Búast má við norðan kalda eða strekkingi í dag en austan Öræfa má reikna meðallhvössum eða hvössum vindi fram að hádegi samkvæmt Veðurstofu Íslands.Úr...
Hörður Arnars­son og náttúru- og inn­viða­gjald á Sprengi­sandi - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Hörður Arnars­son og náttúru- og inn­viða­gjald á Sprengi­sandi - Vísir
Fyrsti gestur Páls verður Dr. Hafsteinn Dan Kristjánsson, lagaprófessor. Hann hefur meðal annars kennt Evrópu- og stjórnsýslurétt við Oxford-háskóla o...
Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst - Vísir
Þetta segir Hrund Ottósdóttir, 47 ára Grindvíkingur, en í desember verða þrjátíu ár liðin frá því að tvíburabróðir hennar, Hafliði, féll fyrir eigin h...
14,600 people are waiting for home care support in the Canary Islands
📅 25.10.2026 👁️ 2
14,600 people are waiting for home care support in the Canary Islands
Thousands of people who need help with everyday activities are still waiting for support in the Canary Islands, despite a substantial reduction in del...
Stigmögnun skuggastríðsins
📅 25.10.2026 👁️ 3
Stigmögnun skuggastríðsins
Orðin fjölþáttaógnir, fjölþáttaárásir og fjölþáttastríð hafa heyrst töluvert í fréttum síðustu mánuði og ekki að ástæðulausu því samhliða innrásarstrí...
Sleit sam­bandi við föður sinn í ljósi á­sakana - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Sleit sam­bandi við föður sinn í ljósi á­sakana - Vísir
The Sun og BBC greina frá. BBC hefur eftir heimildarmönnum sínum sem nákomnir væru Meghan að hún hefði tjáð föður sínum að samskiptum þeirra á milli v...
Musk says SpaceX restricted Ukraine's Starlink connection as service restored
📅 25.10.2026 👁️ 2
Musk says SpaceX restricted Ukraine's Starlink connection as service restored
The tech billionaire accuses Ukraine of violating its terms of service by using the network for military activity.
Dýra steikin á mat­seðlinum er ekki þarna til að seljast - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Dýra steikin á mat­seðlinum er ekki þarna til að seljast - Vísir
Því það eru ótrúlegustu atriði sem eru að hafa áhrif á okkur!  Og sumir spila auðvitað á þetta. Dýra steikin á matseðlinum er til dæmis ekkert endileg...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Annars verða allir drepnir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Annars verða allir drepnir
Mynd Skapandi einstaklingur með frumlega hugsun rekst
Nóg sé komið af Trump - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Nóg sé komið af Trump - Vísir
„Eftir tveggja ára óreiðu, grimmd, spillingu og vanhæfni, sem á sér enga hliðstæðu í nútímanum, gefst ykkur tækifæri til að segja: „Nú er nóg komið,““...
Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
📅 25.10.2026 👁️ 2
Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn Skylar SkyeÖrlög Carrick gætu ráðist í dag Mynd: Instagram Kona sem er mi...
19-year-old airlifted to hospital after serious motorbike accident in Tenerife
📅 25.10.2026 👁️ 2
19-year-old airlifted to hospital after serious motorbike accident in Tenerife
A 19-year-old man was seriously injured and a second man taken to hospital after a collision involving two motorcycles and a car on the TF-24 in Tener...
Norðan kaldi og snjó­koma til fjalla - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Norðan kaldi og snjó­koma til fjalla - Vísir
„Úrkomusvæði sem kemur úr austri mjakast yfir landið í dag með úrkomu, en sunnan- og vestanlands verður úrkomulítið þangað til í kvöld. Þó gæti hann h...
SUNDAY WEATHER: Temperatures up to 30°C as calima returns
📅 25.10.2026 👁️ 4
SUNDAY WEATHER: Temperatures up to 30°C as calima returns
Temperatures could reach 30°C in parts of the Canary Islands today, Sunday 25th October, with sunny spells, passing cloud and a return of calima, main...
Obama gagnrýndi Trump harðlega
📅 25.10.2026 👁️ 4
Obama gagnrýndi Trump harðlega
Fyrrum forseti Bandaríkjanna Barack Obama fór hörðum orðum um núverandi forseta Donald Trump á kosningafundum frambjóðenda Demókrataflokksins í Ohio o...
„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
📅 25.10.2026 👁️ 3
„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“ Mynd: Golli Reynir Pétur Steinunnarson vakti athygli landans árið 1985 þegar hann gekk hringinn í kring...
Fyrrverandi sjaríadómari hélt fyrirlestur í Stórmoskunni á Íslandi
📅 25.10.2026 👁️ 4
Fyrrverandi sjaríadómari hélt fyrirlestur í Stórmoskunni á Íslandi
Sheikh Muhammad Taqi Usmani, fyrrverandi dómari í sjaríadeild Hæstaréttar Pakistans, hélt fyrirlestur í Stórmoskunni á Íslandi í Skógarhlíð í Reykjaví...
Beneath Lanzarote: discover the volcanic tunnels of Cueva de los Verdes
📅 25.10.2026 👁️ 3
Beneath Lanzarote: discover the volcanic tunnels of Cueva de los Verdes
Lanzarote’s volcanic scenery is spectacular from the surface, but some of its most intriguing sights lie beneath your feet.In the north of the island,...
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
📅 25.10.2026 👁️ 3
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“ „Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segi...
2.000 Palestínumenn hraktir frá Hebron
📅 25.10.2026 👁️ 4
2.000 Palestínumenn hraktir frá Hebron
2.000 Palestínumenn voru hraktir af heimilum sínum í Hebron á Vesturbakkanum í gær. Ísraelski varnarmálaráðherrann Israel Katz segir að fólkið hafi ve...
Sigmundur Ernir skrifar: Það krefst úthalds að auðga samfélagið
📅 25.10.2026 👁️ 4
Sigmundur Ernir skrifar: Það krefst úthalds að auðga samfélagið
Mynd Mannréttindabarátta hefur mestu varðað um bætta ásýnd samfé
Krakkatía vikunnar: Ill­menni, bofs og Einar Ás­kell - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Krakkatía vikunnar: Ill­menni, bofs og Einar Ás­kell - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Four ways Labour could raise money in the Budget without hiking income tax
📅 25.10.2026 👁️ 3
Four ways Labour could raise money in the Budget without hiking income tax
Chancellor John Healey may need to raise money to boost his fiscal headroom - BBC Verify examines what options could be on the table.
Meta frestar breytingu á skilmálum til 20. nóvember
📅 25.10.2026 👁️ 4
Meta frestar breytingu á skilmálum til 20. nóvember
Meta, fyrirtækið sem rekur Facebook og Instagram auk annarra samfélagsmiðla, tilkynnti á föstudag að fyrirhuguðum breytingum á notendaskilmálum fyrirt...
Israel to close West Bank crossings on election day as crackdown escalates
📅 25.10.2026 👁️ 3
Israel to close West Bank crossings on election day as crackdown escalates
The Israeli Defense Forces announces restrictions on the movement of Palestinian workers in the run-up to Tuesday's election.
Erkibiskupsdæmið í New York samþykkir sáttagreiðslur til þolenda kynferðisofbeldis
📅 25.10.2026 👁️ 3
Erkibiskupsdæmið í New York samþykkir sáttagreiðslur til þolenda kynferðisofbeldis
Rómversk-kaþólska erkibiskupsdæmið í New York og lögmenn þess hafa samþykkt að greiða sáttagreiðslur að upphæð 800 milljónir dollara til þolenda kynfe...
Budget to include £1bn for social and affordable housing
📅 25.10.2026 👁️ 4
Budget to include £1bn for social and affordable housing
The move will take funding for the 10-year programme to more than £40bn.
Alþjóðaflugvöllurinn í Ríad opnaður að nýju
📅 25.10.2026 👁️ 2
Alþjóðaflugvöllurinn í Ríad opnaður að nýju
Alþjóðaflugvöllurinn í Ríad í Sádi-Arabíu verður opnaður að nýju í dag eftir tveggja vikna lokun vegna árása Húta á flugvöllinn. Hútar hafa gert nokkr...