Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi menntamálaráðherra, telur nauðsynlegt að ráðast í róttækar breytingar í menntakerfinu til að snúa þróuninni við.
Hún vill meðal annars að umfangsmikil samanburðarrannsókn verði gerð á íslenska menntakerfinu og því eistneska í samvinnu við Efnahags- og framfarastofnunina (OECD).
„Og ég nefni eistneska menntakerfið vegna þess að þeir hafa núna tvö ár í röð komið einstaklega vel út og hafa komið best út af ríkjum í Evrópu. Og við erum menningarlega - þá erum við ekkert frábrugðin Finnlandi og Eistlandi, og eitthvað eru þessi ríki að gera sem kemur svona vel út,“ segir Lilja.
Hún segir markmiðið að setja fram hagnýtar tillögur sem byggðar eru á gögnum til að efla gæði og árangur menntunar.
„Ég myndi telja að þetta ætti að vera samstarfsverkefni, mennta- og barnamálaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, menntavísindasviðs og allra okkar helstu fagaðila, því það hvílir auðvitað skylda á þeim sem bera ábyrgð á menntakerfinu, hvort sem það eru stjórnvöld eða aðrir, að styðja betur við kennara.“
Vill sjá frekari aðgerðir
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, kynnti í dag niðurstöður og viðbrögð við nýjustu PISA-könnuninni á blaðamannafundi.
Lilja fagnar símafríinu sem menntamálaráðherra hefur boðað og auknu fjármagni í námsgögn. Sjálf hefur hún talað fyrir því að íslenskt kennsluefni verði þyngt og að orðaforði barna verði efldur.
„Ég held hins vegar að það þurfi að fara í enn frekari kerfisbreytingar og meiri stuðning stjórnvalda við kennara. Það sem ég myndi byrja á núna er að fara í samanburðarrannsókn á íslenska menntakerfinu og því eistneska, alveg frá grunni, frá fyrsta bekk,“ segir Lilja.
Til þess að ná raunverulegum árangri þá þurfi Íslendingar að vera með rannsóknir sem styðji næstu skref.
„Símafrí og minni skjánotkun — það er fínt en ég fagna því en ég fullyrði að það mun ekki duga til. Það þarf að gera mun meira.“
Lilja segist hafa kynnt tillöguna um samanburðarrannsóknina fyrir fulltrúum mennta- og barnamálaráðuneytisins.
„Þetta náði ekki alveg framgangi í ráðuneyti Ingu, en vonandi sér hún það að við þurfum að horfa meira í það sem er að gerast alþjóðlega.“