Fagfélögin segja að skilaboð ríkisstjórnarinnar til vinnandi fólks, sem er að finna í fjárlagafrumvarpi næsta árs, séu skýr: hún ætli ekki að standa með því í baráttunni við verðbólgu og háa vexti. Þess í stað veiki hún stuðningskerfi heimilanna og leggi sitt af mörkum til verðhækkana.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu þar sem fjárlagafrumvarpið er fordæmt. Fagfélögin segja rúmlega 5% gjaldahækkanir og 16 prósenta hækkun kílómetragjalds sýna að ríkisstjórnin hafi gefist upp á því að ná verðbólgu niður.
Félögin segja það aðför að kjörum vinnandi fólks að persónuafsláttur þróist ekki eins og verið hefur heldur hækki minna en áður.