Löng röð myndaðist í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík í dag, fyrsta dag vetrar.
Þar voru ýmsar kynjaverur á ferðinni. Drauga- og skrímslaganga hitaði upp fyrir hrekkjavöku sem er á laugardag eftir viku. Krakkar gátu búið til sínar eigin hrekkjavökugrímur og sagðar voru sögur af draugum og skrímslum úr íslenskum þjóðsögum.