Meira en 800 þúsund mótmæltu í Frakklandi í dag að sögn almenna verkalýðssambandsins CGT. Innviðaráðherra Frakklands segir fjölda mótmælenda nær 400 þúsund.
250 þúsund mótmæltu í París í dag að sögn CGT. Þar hefur verið neglt fyrir glugga verslana og söfnum og neðanjarðarlestarstöðvum lokað. Mótmælin fóru að mestu friðsamlega fram en til átaka kom síðdegis þegar 500 óeirðarseggir réðust á lögreglumenn. Lögregla beitti táragasi og sprautaði vatni á mótmælendur.
Miklar óeirðir hafa sprottið upp úr mótmælunum í Frakklandi sem náðu hámarki síðasta laugardag. Þá voru 2.700 manns handteknir.
Yfirvöld í Frakklandi hertu öryggisráðstafanir og settu mótmælendum skorður víða, svo sem um hvar væri leyfilegt að mótmæla. 70 þúsund lögreglumenn voru sendir um landið allt vegna mótmælanna.
Katana-sverð og teygjubyssur
Laurent Nuñez, innviðaráðherra Frakklands, segir að að minnsta kosti þúsund hafi verið handteknir í mótmælunum í dag. Lögregla hafi gert vopn á borð við katana-sverð, blýhögl og teygjubyssur upptæk auk annarra heimatilbúinna vopna og flugelda.
Í borginni Nantes brutust þúsundir mótmælenda í gegnum varnarlínur lögreglu til að komast inn í miðborgina, að sögn blaðamanns AFP. Lögreglumenn beittu táragasi og vatnsbyssu til að reyna að stöðva þá á meðan hluti mótmælenda kastaði hlutum og skaut flugeldum í átt að lögreglumönnum.
Þar að auki beitti lögregla táragasi í borgunum Lyon, Lille, Toulouse, Montpellier og Strassbourg.
Mótmælin í Frakklandi hófust um miðjan september þegar framhaldsskólanemar kröfðust betri aðstæðna til náms. Nú hafa mótmælin þróast og fólk kemur saman til að mótmæla ýmsum málum, svo sem háum framfærslukostnaði, niðurskurði á opinberri þjónustu og til þess að gagnrýna stjórnvöld.
Mótmæli víðar
Það eru ekki einungis Frakkar sem mótmæltu í dag. Það voru líka fjölmenn mótmæli á Ítalíu, á Spáni, í Portúgal, Albaníu og Austurríki.
Meira en 500 hermenn og 5 þúsund lögreglumenn stóðu vörð í Mílanó í dag þar sem þúsundir mótmæltu. Stúdentar, vöruflutningabílstjórar og bændur hafa leitt mótmæli á Ítalíu undanfarið gegn hækkandi framfærslukostnaði, húsnæðiskostnaði, bensínverði, spillingu og stríði.
Mikill mannfjöldi, að mestu ungt fólk, gekk um götur borgarinnar, mótmælti Giorgiu Meloni forsætisráðherra landsins og hélt á lofti borðum með áletrunum á borð við „Nei við lygum ríkisins,“ að því er fram kemur í frétt AP.
Hópur mótmælenda sturtaði mykju fyrir utan orkueftirlitsstofnun Ítalíu og kveikt í risastórum, táknrænum, rafmagnsreikningi.
Á Spáni og í Portúgal tengjast mótmælin húsnæðisvanda og háum framfærslukostnaði. Á Spáni mótmæla eldri borgarar og krefjast betri ellilífeyris, kynjajafnréttis og að ríkisstjórnin komi böndum á verðbólgu.