María Rut Kristinsdóttir, formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis og þingmaður Viðreisnar, segir gagnrýnisraddir um breytingu á niðurgreiðslu Loftbrúar skiljanlegar. Hún sjálf hafi efasemdir um upphæð niðurgreiðslunnar.
Íbúar á landsbyggðinni hafa getað nýtt Loftbrú við kaup á innanlandsflugi frá 2020. Hver og einn á rétt á sex flugleggjum á ári sem ríkið niðurgreiðir um fjörutíu prósent. Frá áramótum breytist fyrirkomulagið. Í stað fjörutíu prósenta afsláttar verða sjö þúsund krónur af hverjum fluglegg niðurgreiddar. Niðurgreiðslan á ársgrundvelli á hvern íbúa getur því mest orðið fjörutíu og tvö þúsund krónur.
„Við erum auðvitað bara mjög reið hér fyrir austan,“ segir Ragnar Sigurðsson, formaður Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi. „Maður finnur það á almenningi, mikil reiði. Það er líka reiði í okkar sveitarstjórnarmönnum vegna þess að okkur hafði verið heitið því fyrr á árinu að það yrðu engar breytingar gerðar á Loftbrúnni nema að viðhöfðu samráði við okkur. Þannig að við erum eðlilega mjög svekkt.“
Það samtal hafi ekki átt sér stað. Ofan á aðrar boðaðar breytingar og álögur ríkisstjórnarinnar, á borð við sameiningu lögregluembætta og hækkun kílómetragjalds, komi þetta illa við íbúa í landshlutanum.
Skert lífsgæði
„Við höfum í raun mjög lítið val. Og það er það sem við erum líka að benda á. Þetta er okkar eina leið suður á höfuðborgarsvæðið. Þannig að þetta þýðir bara skert lífsgæði hér. Það er ekkert annað sem þetta þýðir. Við höfum engar aðrar lausnir sem við getum boðið upp á.“
Ragnar segir að Landshlutasamtökin og sveitarstjórnarfulltrúar víða um land ræði saman vegna málsins. Til stendur að senda sameiginlegt bréf til ríkisstjórnar og fjárlaganefndar, þar sem þess verður krafist að breytingin verði endurskoðuð.
„Hvorki við né almenningur hér mun sætta sig við þessa boðuðu leið."
Ekki viss um að niðurgreiðslan sé nógu há
Formaður umhverfis- og samgöngunefndar segist skilja þessa gagnrýni.
„Ég er ekki viss um að þetta sé nógu hátt verð, þessar sjö þúsund krónur. Og ég held að það sé ágætt að við hlustum á þá skiljanlegu gagnrýni sem er í gangi núna og finnum leiðir til þess að Loftbrúin sé fúnkerandi og virki fyrir það sem hún á að vera,“ segir María Rut Kristinsdóttir.
„Það á ekki að vera einhvers konar lúxusvara að geta hoppað í flug með börnin sín til læknis eða fara í mæðravernd eða annað,“ segir hún.
„Ég hef talað fyrir því bæði í mínum þingflokki og ég veit að það eru fleiri þingmenn sem eru að ræða málin sín á milli og eru að leggja við hlustir. Fólk er að gagnrýna það að þetta muni ekki duga til og þá finnst mér það ábyrgðarhlutverk að hlusta á það.“