Skólatorfan á Reyðarfirði, knattspyrnuhöll, íþróttahús og skólamannvirki verða kynt með brennslu á viðarperlum. Framkvæmdir eru langt komnar við nýja kyndistöð Tandraorku.
Viðarperlurnar, sem eru framleiddar á Eskifirði úr grisjunarviði úr austfirskum skógum, verða brenndar og hitinn af brunanum notaður til að hita vatn sem fer inn á fjarvarmaveitu sem hefur fram til þessa verið knúin skerðanlegri orku. Fjarðabyggð og Tandraorka hafa gert samning um rekstur kyndistöðvarinnar. Stærsta breytingin verður kynding knattspyrnuhússins, þar sem hefur verið býsna kalt síðustu áratugi.
„Hún hefur ekki verið uppnefnd Klakahöllin út af engu,“ segir Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri í Fjarðabyggð. Hún segir að þegar ráðast hafi átt í það stóra verkefni að kynda höllina hafi komið til tals að horfa til nýrra orkugjafa og verið ákveðið að semja við Tandraorku.
Það eigi eftir að koma í ljós hver hagræðingin sé af því að notast við þessa aðferð til kyndingar en með því að fara í þetta tilraunaverkefni komist á það reynsla. „Auðvitað tekur tíma að sjá hvaða árangri við náum af þessu en ef við prófum aldrei neitt nýtt þá gerist heldur aldrei neitt nýtt,“ segir Jóna Árný.
Kolefnishlutlaus orkugjafi
Einar Birgir Kristjánsson er framkvæmdastjóri Tandraorku og tengdra fyrirtækja sem framleiða viðarperlurnar. Hann segir þær ákjósanlegan orkugjafa við kyndingu á köldum svæðum og að bruninn sé kolefnishlutlaus.
„Það losnar við brunann kolefni úr timbrinu sem timbrið var búið að binda,“ segir Einar. Það þurfi að grisja skógana til að þeir dafni. „Og ef það er ekki nýtt þá auðvitað losnar bara kolefnið út í andrúmsloftið við rotnun.“
Með þessari aðferð sér Einar fram á að hægt sé að skera niður kyndingarkostnað á köldum svæðum.
„Það eru gríðarleg tækifæri hér á Austurlandi að gera svona og nýta allan grisjunarviðinn sem er ógrisjaður en þarf að grisja.“
Væri hægt að kynda heilu þorpin með þessum hætti?
„Alveg klárlega.“