Formaður félags bókasafnsfræðinga segir samfélagslegan ávinning bókasafna meiri en svo að hægt sé að mæla hann í útlánstölum og gestafjölda. Hún sjái ekki hvernig eigi að hagræða og bæta þjónustu á bókasöfnum á sama tíma.
Meirihluti menningarráðs Reykjavíkurborgar leggur til að framkvæmd verði heildstæð greining á rekstri, starfsemi og framtíðarskipulagi Borgarbókasafns Reykjavíkur.
Fram kemur í tillögunni að gerður verði tölulegur samanburður á rekstri og nýtingu á húsnæði. Kostnaður á hvern gest og hvert útlán verði skoðaður sem og möguleg fækkun útibúa safnsins.
Ummæli borgarstjóra dæmi sig sjálf
Margir eru ósáttir við tillöguna. Fulltrúar meirihlutans hafa ítrekað að ekki standi til að loka bókasöfnum borgarinnar. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri sagði svo virðast sem læsisvanda gæti meðal fullorðinna ef marka megi viðbrögðin.
Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir, formaður Félags bókasafnsfræðinga, segir ummæli borgarstjóra dæma sig sjálf. Erfitt sé að verðmeta þjónustu bókasafna.
„Það er sjaldan samhljómur milli orðanna hagræðing og stórsókn þannig að okkur finnst þetta skjóta skökku við og svo er það líka þannig að samfélagslegur ávinningur bókasafna er meiri en svo að það sé hægt að mæla hann með útlánatölum eða gestafjölda.“
Vel fjármögnuð bókasöfn hagur allra
Samnýting skólabókasafna og almenningsbókasafna hafi verið nefnd sem möguleiki til hagræðingar en Hrönn telur það ekki góða lausn þó að slíkt hafi gengið vel á einhverjum stöðum. Það séu almennt tvær gjörólíkar starfsemir.
Hlutverk bókasafna sé ekki einungis að lána út bækur heldur að efla samfélagið, þekkingu, skilning, kunnáttu, læsi og lífsgæði. Vel fjármögnuð bókasöfn séu hagur allra.
„Það er tíðrætt um einmanaleikafaraldur og þar eru náttúrulega fáir staðir jafn mikilvægir og bókasöfnin því það er einn af fáum stöðum eftir í samfélaginu þar sem fólk getur komið án þess að það sé einhver krafa um að eyða pening.“