Stjórn Eflingar hefur samþykkt að skoða hvort félagið eigi að segja sig úr Alþýðusambandi Íslands. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að innan ASÍ séu hagsmunir millistéttarinnar iðulega settir ofar hagsmunum láglaunafólks.
Efling stéttarfélag hefur ákveðið að hefja skoðun á því hvaða stöðu það hefur innan ASÍ og hvað úrsögn úr sambandinu þýði. Kallað hefur verið eftir úttekt frá lögmannsstofunni Magna um stöðu Eflingar innan sambandsins. Sólveig Anna segir það reglulega hafa komið upp í umræðuna síðustu ár, meðal annars frá stjórnar- og félagsmönnum Eflingar, að félagið ætti að segja sig úr ASÍ.
Hagsmunum láglaunafólks mögulega betur borgið utan ASÍ
„Mögulega er hagsmunum verka- og láglaunafólks hér á höfuðborgarsvæðinu, þessum risastóra hópi, Efling er með 28 þúsund félagsmenn, betur borgið utan þessara heildarsamtaka þar sem hagsmunir hærri launaðra hópa, millistéttar og efri millistéttar, eru iðulega settir framar hagsmunum verka- og láglaunafólks,“ segir Sólveig Anna.
Hún segir þó margt gott við Alþýðusambandið. Efling hafi átt í góðu samstarfi við félög innan þess.
„En við erum þó nokkuð jaðarsett og það hefur alls ekki gengið vel fyrir okkur oft og tíðum að fá áheyrn um mikilvæg málefni. Við höfum líka lent í því að vera einfaldlega ósammála Alþýðusambandinu í grundvallaratriðum.“
Því sé ekkert annað í stöðunni en að skoða úrsögn af fullri alvöru í stað þess að velta því upp af og til hvort hún komi Eflingu betur. Úrsögn myndi eflaust hafa mikil áhrif á ASÍ. Ekki sé hægt að segja til um hve langan tíma úttektin taki.
Fulltrúar Eflingar hafi lítið vægi innan ASÍ
Sólveig Anna bauð sig fram til fyrsta varaforseta ASÍ fyrr í mánuðinum en laut í lægra haldi fyrir Höllu Gunnarsdóttur formanni VR.
Sólveig hafnar því alfarið að hafa nefnt mögulega úrsögn Eflingar úr ASÍ til þess að hafa áhrif á niðurstöður kosninganna. Hún hafi þó sagt að niðurstöður atkvæðagreiðslunnar myndu hafa áhrif.
Það hafi þó gefið augaleið, enn eina ferðina, að fulltrúar og formaður Eflingar hafi lítið vægi innan ASÍ þrátt fyrir að vera næststærsta félagið innan sambandsins.
„En það er auðvitað ekki það sem ræður för hér, það er einfaldlega kominn tímapunktur núna fyrir okkur til að skoða þetta af fullri alvöru eins og við skoðum alla aðra hluti í Eflingu og ekki eftir neinu að bíða.“