Leanne Gregory var að snorkla ásamt fjölskyldu sinni við eyjuna Bimini á þriðjudag þegar drengirnir voru gripnir af straumnum. Báðum börnunum var bjargað úr sjónum en ekki tókst að bjarga móður þeirra, að því er breska ríkisútvarpið hefur eftir lögreglunni á Bahamaeyjum.
Missirinn ólýsanlegur
Nathan Gregory, eiginmaður hennar, segir missinn ólýsanlegan fyrir fjölskylduna.
„Hún var hreinasta og ótrúlegasta eiginkona, móðir og vinkona sem gengið hefur á þessari jörð,“ skrifaði hann á Facebook.
Hann sagði eiginkonu sína hafa verið æskuástina sína og sálufélaga. Þau höfðu verið saman í 22 ár.
„Strákarnir mínir þurftu að verða vitni að einhverju sem enginn, á hvaða aldri sem er, ætti að þurfa að sjá. En þeir vita að mamma þeirra dó sem algjör hetja.“
Hetja í lífi og dauða
Nathan hefur stofnað söfnun til stuðnings sonum þeirra eftir slysið. Þar lýsir hann því hvernig Leanne hafi haldið í annan drenginn þar til björgun barst.
Hann segist þakklátur fyrir að synir þeirra hafi komist lífs af.
„Ég verð bara að vera þakklátur fyrir hetjuna sem hún var, bæði í lífi og dauða.“
Lögreglunni á Bahamaeyjum barst tilkynning skömmu eftir klukkan tíu að staðartíma á þriðjudag um meðvitundarlausa konu við ferjubryggjuna á North Bimini. Leanne hafði þá verið flutt þangað úr sjónum og var endurlífgun reynd á henni. Hún var síðan flutt á heilsugæslustöð þar sem hún var úrskurðuð látin.