Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir fulla ástæðu til að sýna stillingu en taka því alvarlega þegar valdamikið fólk gantast með fullveldi landsins.
Bandaríkjaforseti birti í gær mynd af Íslandi og nágrannaríkjum þöktum bandarískum fána. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund í gær vegna myndbirtingarinnar.
„Að mínu mati er nauðsynlegt að við sýnum samtöðu hér innanlands og stillingu,“ segir Pawel, og áréttar um leið að yfirlýsingum á borð við myndbirtingu Trumps hafi í sumum tilvikum fylgt aðgerðir.
„Nú eiga til dæmis Bandaríkin og Kanada í viðskipastríði þar sem hafa verið lagðir ofurtollar á Kandískar vörur þannig að þó að það sé ekki ástæða til að verða örvæntingarfullur þá þarf að vera viðbúin að svona yfirlýsingum hafa í einhverjum tilfellum fylgt aðgerðir.“
Pawel býst við að ráðherra hafi samráð við utanríkismálanefnd en á ekki von á viðbrögðum frá þinginu á þessari stundu.
„En við þurfum bara að hafa gott samráð og stuðla að því að það verði pólitísk samstaða hér innanlands því að það er ekki gott ef við förum að rífast á þessari stundu.“
Þá segir Pawel gott samband og samtal við allar vinaþjóðir áfram nauðsynlegt.
„Vegna þess að á þessum tíma þá skiptir auðvitað miklu máli að halda uppi nafni alþjóðalaga og tryggja það að fullveldi og landamæri ríkja séu virt.“