Flugsamgöngur á Bretlandi og Írlandi hafa farið verulega úr skorðum í dag eftir að tæknivandamál kom upp í flugumsjónarkerfinu NATS.
Mestar voru truflanirnar á Heathrow-flugvelli í Lundúnum. Brottfarir voru stöðvaðar um hádegisbil og vélum sem voru á leið þangað var beint á aðra flugvelli. Það urðu einnig truflanir á Gatwick í Lundúnum og á flugvöllunum í Manchester, Newcastle og Edinborg. Þá voru líka truflanir á báðum flugvöllunum í Belfast og í Derry, sem og í Dublin og Cork á Írlandi.
Minnst 625 flugferðum til og frá Bretlandi hefur varið aflýst samkvæmt vef Guardian. EasyJet hefur fellt niður 218 ferðir og British Airways yfir 100 ferðir.
Bilunin hefur haft áhrif á flugferðir Icelandair til og frá Lundúnum. Seinkun varð á tveimur flugferðum frá Gatwick. Önnur flugvélin er þó farin af stað. Einni flugferð frá Heathrow-flugvellinum var aflýst eftir seinkun vegna hvíldartíma áhafnar, segir Guðni Sigurðsson upplýsingafulltrúi Icelandair.
Forsvarsmenn NATS-kerfisins segja að bilunin hafi verið í flugleiðsögukerfinu sem flugumferðarstjórar nota til að stjórna umferðinni. Þetta kerfi sendir jafnóðum upplýsingar um ferðir flugvéla inn í breska lofthelgi þannig að flugumferðarstjórar geti stjórnað. Síðustu fregnir herma að kerfið sé að komast í gang. Ekkert hefur verið gefið upp um orsök bilunarinnar.