Leikkonan Salma Hayek sannaði að aldur er bara tala þegar fækkaði fötum og stakk sér til sunds í tilefni af 60 ára afmæli sínu. Leikkonan, sem á afmæli 2. september, deildi á Instagram á mánudag kynþokkafullum myndum af sér að velta sér um í sjónum.„60 ára og þakklát,“ skrifaði Hayek við myndirnar.Nokkrir aðdáendur voru himinlifandi og einn þeirra skrifaði: „60 ára en samt aldurslaus ... faðir tímans hlýtur að vera heillaður af þér.“
Fagnaði sextugsafmæli með því að fækka fötum: „Þakklát“