Tveir listaverkaþjófar brutust inn í Renoir-safnið í Cagnes-sur-Mer á frönsku rivíerunni snemma í morgun og stálu þaðan fjórum málverkum eftir franska listamálarann Pierre-Auguste Renoir.
Þjófarnir skildu þó við tvö verkanna á flótta sínum og komust því á brott með tvö málverk.
Skrifstofa bæjarstjórans í Cagnes-sur-Mer hefur greint frá því hvaða verk þetta eru. Annars vegar portrettmynd af frú Colonna Romano frá 1910 og hins vegar Jeune femme au puits, eða Ung stúlka við brunn, frá 1886.
Verkin tvö sem urðu eftir nefnast Coco lisant, eða Coco les, frá 1905 og Portrett af frú Pichon frá 1895.
Búnir járnsög og rafknúnum hníf
Þjófavarnarkerfi safnsins fór í gang þegar klukkuna vantaði tólf mínútur í sex að staðartíma í morgun. Þjófarnir voru vel útbúnir og þekktu voru vel undirbúnir, sagði bæjarstjórinn Bryan Masson við fjölmiðla fyrir utan safnið í dag.
Hann sagði þjófana hafa verið í orrustuútbúnaði og með hjálma. Þeir voru vopnaðir járnsög og rafknúnum hníf og brutu sér leið í gegnum hlið til að komast inn á safnið. Masson sagði myndbandsupptökur sýna þjófana skera í sundur festingar sem héldu römmum myndanna föstum við veggi safnsins.
Lögreglan var mætt á vettvang fimm mínútum eftir að þjófavarnarkerfið fór af stað. Masson segir þjófana hafa hlaupið í gegnum garð safnsins og þar hafi þeir skilið tvö verk eftir.
Bylgja innbrota eftir þjófnaðinn í Louvre
Síðasta árið hafa þjófar látið greipar sópa í söfnum í Frakklandi og raunar víðar í Evrópu. Arthur Brand, sérfræðingur í listaverkastuldi, sagði við BBC í síðustu viku að þjófnaðurinn í Louvre-safninu í október í fyrra hefði kynt undir þessari bylgju. Þá komust þjófar á brott með ómetanlega skartgripi og enn hefur ekki tekist að endurheimta þá alla.
„Við munum sjá meira af þessu því ef það er hægt að brjótast inn í Louvre þá munu þjófar víða um heim taka eftir því og hugsa: „Vá,““ segir Brand. Líklegt sé því að þeir muni herja á minni söfn sem geyma gersemar.
Í mars var málverki eftir Renoir stolið í listaverkaþjófnaði nærri Parma á Ítalíu. Lögreglan fann verkið, auk málverka eftir Paul Cézanne og Henri Matisse, í síðasta mánuði.
Þörf á stuðningi til að tryggja öryggisgæslu
12 málverk eftir Pierre-Auguste Renoir eru í safneign Renoir-safnsins í Cagnes-sur-Mer og líkt og áður segir eru tvö þeirra nú týnd. Hann er einn þekktasti istamálarinn úr röðum impressjónista sem höfðu gífurleg áhrif á þróun listsköpunar á ofanverðri 19. öld.
Talsmaður skrifstofu bæjarstjórans segir að allt kapp sé lagt á að finna þjófana og verkin tvö. Hann segir frönsku ríkisstjórnina þurfa að styðja betur við söfn til þess að þau geti varið listaverk sín frá „sífellt skipulagðari og einbeittari glæpamönnum“.