Leikarinn Gary Oldman fullyrðir að næsti James Bond hafi verið ákveðinn, þar sem hann studdi mótleikara sinn í sjónvarpsþáttunum Slow Horses, Jack Lowden, til að taka að sér hlutverk njósnara hennar hátignar.„Það hefur verið orðrómur um að hann sé á stuttlistanum,“ sagði Oldman, 68 ára, í viðtali við kanadísku sjónvarpsþáttina The Morning Show.„Við munum komast að því fljótlega, er það ekki? Því þau hafa valið hann,“ fullyrti Oldman.. „Þau hafa tekið ákvörðun sína en ekki tilkynnt hana ennþá.“
Fullyrðir að nýr James Bond hafi verið valinn: „Við munum komast að því fljótlega“